Yfir 4.000 klukkustundir í símenntun í fyrsta októberátaki Ræktum vitið
Alls skráðu 270 þátttakendur rúmlega 4.000 klukkustundir í sí- og endurmenntun í október þegar fyrsta átaksverkefnið undir merkjum Ræktum vitið fór fram. Þátttakendur skráðu samtals 2.842 lærdómsverkefni og sýndu þannig að tækifærin til að efla þekkingu og hæfni í starfi eru fjölbreytt. ELKO, Danól og Rue de Net hlutu viðurkenningar fyrir árangur sinn í átakinu.
Ræktum vitið er samstarfsverkefni Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) sem hefur það að markmiði að efla sí- og endurmenntun starfsfólks í verslun og þjónustu og hvetja fyrirtæki til að gera þekkingaröflun að eðlilegum hluta vinnustaðamenningarinnar. (Sjá samstarfssamning)
Í október var í fyrsta sinn efnt til sérstaks mánaðarátaks þar sem starfsfólk og fyrirtæki voru hvött til að skrá alla starfstengda þekkingaröflun á vefnum raektumvitid.is. Jafnframt var efnt til vinveittrar keppni milli fyrirtækja í þremur stærðarflokkum.
Tveir vinnudagar af lærdómi á hvern þátttakanda
Þátttakan fór vel af stað og alls stofnuðu 402 einstaklingar aðgang að átaksvefnum. Þar af skráðu 270 einstaklingar að minnsta kosti eitt lærdómsverkefni í október.
Samtals voru skráðar 4.077 klukkustundir í sí- og endurmenntun, sem jafngildir um 15 klukkustundum á hvern virkan þátttakanda, eða tæplega tveimur átta klukkustunda vinnudögum.
Helstu niðurstöður októberátaksins:
-
270 virkir þátttakendur
-
26 virkir vinnustaðir
-
2.842 skráð lærdómsverkefni
-
4.077 klukkustundir í sí- og endurmenntun
-
10,5 skráningar að meðaltali á hvern virkan þátttakanda
Þátttakan var góð út mánuðinn og tók sérstaklega við sér á lokasprettinum. Flestar skráningar á einum degi voru 179 talsins þann 28. október.
Símenntun er miklu meira en námskeið
Eitt af meginmarkmiðum átaksins var að vekja athygli á því að sí- og endurmenntun getur tekið á sig margar myndir. Hún einskorðast ekki við hefðbundin námskeið eða formlegt nám heldur getur falist í fjölbreyttri þekkingaröflun sem tengist daglegum störfum.
Niðurstöðurnar endurspegla þetta vel. Hlustun á fræðsluefni var vinsælasta leiðin til þekkingaröflunar en einnig var mikið um að þátttakendur horfðu á fræðsluefni, læsu greinar og annað námsefni eða lærðu á nýja tækni.
Athygli vekur að 249 skráningar tengdust því að læra á gervigreind, sem endurspeglar áhuga þátttakenda á að tileinka sér nýja tækni og færni.
Þátttakendur skráðu einnig fjölmörg verkefni sem snerust um að miðla þekkingu og hugmyndum til samstarfsfólks.
Um 85% skráninga voru á virkum dögum, sem bendir til þess að þekkingaröflun hafi að verulegu leyti verið samþætt daglegum störfum.
ELKO, Danól og Rue de Net sigurvegarar
Til að hvetja til þátttöku var efnt til keppni milli vinnustaða þar sem fyrirtækjum var skipt í þrjá stærðarflokka.
Viðurkenningar fyrir besta árangurinn í októberátakinu 2026 hlutu:
🏆 Lítil fyrirtæki: Rue de Net
🏆 Meðalstór fyrirtæki: Danól
🏆 Stór fyrirtæki: ELKO
Viðurkenningarnar voru afhentar við athöfn í Húsi atvinnulífsins föstudaginn 6. nóvember af Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóra SVÞ, og Stefáni Sveinbjörnssyni, framkvæmdastjóra VR.
Sérstaka athygli vekur árangur ELKO, en starfsfólk fyrirtækisins skráði um 61% allra lærdómsverkefna í átakinu. Það sýnir vel hversu miklum árangri samstillt átak innan vinnustaðar getur skilað.
Góður árangur en aðeins byrjunin.
„Við erum mjög ánægð með að þátttakendur hafi skráð yfir 4.000 klukkustundir í sí- og endurmenntun í þessu fyrsta októberátaki. Það er góður árangur og sýnir okkur að hugmyndin á fullt erindi við atvinnulífið. En við vitum líka að tækifærin eru miklu fleiri. Okkar von er að átakið vaxi og dafni á komandi árum, að enn fleiri fyrirtæki og starfsmenn taki þátt og að símenntun verði sífellt eðlilegri hluti af daglegu starfi. Við erum rétt að byrja,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ.
Þótt októberátakinu sé lokið heldur samstarfsverkefnið Ræktum vitið áfram. Markmiðið er að stuðla að aukinni vitund um mikilvægi sí- og endurmenntunar og hvetja bæði starfsfólk og stjórnendur til að leggja rækt við þekkingu og hæfni í síbreytilegu starfsumhverfi.
Við þökkum öllum fyrirtækjum og þátttakendum fyrir þátttökuna og óska sigurvegurunum þremur innilega til hamingju með árangurinn.
Hvert skref í sí- og endurmenntun telur.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á raektumvitid.is.
_______________________________________________
