Til hamingju, Vonarstjörnur 2026!

Til hamingju, Vonarstjörnur 2026!

Það er sannarlega tilefni til að gleðjast þegar fólk úr röðum aðildarfyrirtækja SVÞ og BGS fær viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf.
Á lista Góðra samskipta yfir 20 Vonarstjörnur 2026 undir 40 ára aldri eru nokkrir fulltrúar okkar sem hafa vakið athygli fyrir metnað, árangur og leiðtogahæfni í íslensku atvinnulífi.

Meðal þeirra sem tengjast aðildarfyrirtækjum SVÞ og BGS eru:

  • Jónas Kári Eiríksson (32), framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Inchcape og stjórnarmaður í SVÞ og BGS
  • Sverrir Bartolozzi (29), forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Festi
  • Katrín Aagestad Gunnarsdóttir (35), markaðsstjóri Nettó
  • Tryggvi Már Magnússon (30), fjármálastjóri Eimskips fyrir Bandaríkjamarkað
  • Pétur Melax (28), sölustjóri Bónus

Þessi viðurkenning er til marks um öflugt fólk sem skapar verðmæti, leiðir breytingar og hefur jákvæð áhrif á fyrirtækin sín og íslenskt atvinnulíf.
Við erum sérstaklega stolt af því að Jónas Kári Eiríksson, stjórnarmaður í SVÞ og BGS, sé í þessum glæsilega hópi en hann hefur með kraftmiklum hætti lagt sig fram við að gæta hagsmunafyrirtækja SVÞ og bílgreinarinnar.

Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með viðurkenninguna. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi vegferð þeirra og þeim árangri sem án efa á eftir að fylgja.

____

Mynd frá Medium.

Innviðaráðuneytið hefur enn ekki innleitt reglur sem auðvelda orkuskipti í sendibílaflotum

Innviðaráðuneytið hefur enn ekki innleitt reglur sem auðvelda orkuskipti í sendibílaflotum

Evrópskt regluverk hefur um árabil gert ráð fyrir undanþágu vegna aukinnar þyngdar rafhlaðna í rafknúnum ökutækjum. Sú aðlögun hefur hins vegar ekki enn skilað sér að fullu í íslenskt regluverk. SVÞ og Bílgreinasambandið hafa ítrekað bent á að þessi tregða hamli orkuskiptum og geri fyrirtækjum erfiðara fyrir að fjárfesta í rafknúnum atvinnubílum.

Í umfjöllun Morgunblaðsins 13. júní sl., kemur fram að Innviðaráðuneytið hafi um langt skeið haft málið til skoðunar án þess að breytingar hafi tekið gildi.

Evrópa hefur þegar brugðist við vandanum

Árið 2018 voru samþykktar breytingar á evrópskum reglum sem gera aðildarríkjum kleift að leyfa ökumönnum með B-ökuréttindi að aka rafknúnum ökutækjum og öðrum ökutækjum sem nota aðra orkugjafa, allt að 4.250 kg heildarþyngd. Tilgangurinn var að tryggja að aukin þyngd rafhlaðna yrði ekki hindrun í vegi orkuskipta.

Þessi heimild hefur verið tekin upp í fjölmörgum Evrópuríkjum. Á Íslandi gilda hins vegar enn eldri þyngdarmörk, sem þýðir að fyrirtæki geta þurft að afla starfsfólki aukinna ökuréttinda til að aka rafknúnum sendibílum sem gegna í reynd sama hlutverki og sambærilegir dísilbílar.

Óþarfa hindrun fyrir fyrirtæki

SVÞ hefur bent á að um sé að ræða regluverkshindrun fremur en öryggismál. Burðargeta og notkun ökutækjanna breytast ekki, heldur vegur rafbúnaðurinn meira en hefðbundinn aflrásarbúnaður.

Afleiðingin er aukinn kostnaður, meira flækjustig í rekstri og minni hvati til að endurnýja bílaflota með umhverfisvænni lausnum. Þetta hefur sérstaklega áhrif á fyrirtæki í verslun, þjónustu, flutningum og dreifingu sem treysta á létta atvinnubíla í daglegum rekstri.

Kallað eftir skýrum svörum

SVÞ telur mikilvægt að íslenskt regluverk fylgi þeirri þróun sem þegar hefur átt sér stað víða í Evrópu. Með því yrði dregið úr óþarfa hindrunum, fyrirtækjum auðveldað að ráðast í orkuskipti og stutt betur við loftslagsmarkmið stjórnvalda.

UPPFÆRSLA 23/06/26 – Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskirteini nr. 830/2011 
og frétt hjá Stjórnarráðinu HÉR!

______________________________

Ísland hefur gengið lengra en önnur ríki í peningaþvættisreglum

Ísland hefur gengið lengra en önnur ríki í peningaþvættisreglum

Íslensk „gullhúðun“ á reglum um varnir gegn peningaþvætti hefur skapað verulegt óhagræði fyrir bæði fyrirtæki og almenning. Bílasalar og önnur fyrirtæki hafa í reynd verið gerð að eftirlitsaðilum með umfangsmiklum kröfum um gagnaöflun, skráningar og innra eftirlit sem kosta greinina hundruð milljóna króna á ári og skila sér að lokum í hærra verði til neytenda.

Morgunblaðið fjallar um íþyngjandi peningaþvættisreglur gagnvart bílakaupendum 

Morgunblaðið fjallar í dag 21. maí 2026,  um hvernig íslensk innleiðing peningaþvættisreglna hefur leitt til aukins eftirlits, meiri kostnaðar og umtalsverðs ónæðis fyrir bæði fyrirtæki og almenning. Þar er m.a. vitnað í  Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins og SVÞ, að Ísland hafi gengið lengra en þau ríki sem við berum okkur helst saman við. 

„Okkar rannsókn hefur leitt það í ljós að sú tilkynningarskylda sem hvílir á bifreiðaumboðum, bílasölum og lánamiðlurum kemur fram í því að þess er krafist af almenningi þegar hann kaupir bíla eða einhverja muni að viðkomandi framvísi upplýsingum um hver hann sé og hvaðan peningarnir sem ætlaðir eru til kaupanna komi.“ segir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ og Bílgreinasambandsins í viðtali við Morgunblaðið. 

Í frétt blaðsins kemur fram að almenningur hafi í sumum tilvikum þurft að leggja fram skattframtöl, launaseðla eða aðrar upplýsingar við kaup á bifreiðum og verðmætari vörum. Benedikt segir þessar kröfur vera dæmi um íslenska „gullhúðun“ á Evrópureglum og leiðbeiningum FATF, aðgerðahóps gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. 

Bílasalar gegna hlutverki eftirlitsaðila 

Að mati Bílgreinasambandsins eru sambærilegar kröfur ekki gerðar í þeim ríkjum sem Ísland ber sig saman við. Hér á landi hafi hins vegar verið lagðar umfangsmiklar skyldur á bílasala, bifreiðaumboð og aðra söluaðila um að afla upplýsinga frá viðskiptavinum, meta svör þeirra og halda utan um ítarlega skráningu. 

Í frétt Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi meðal annars viljað bregðast við því að aðilar í bílgreininni gerðu sér ekki alltaf grein fyrir því að móttaka reiðufjár gæti kallað á eftirlitsskyldu. Þá hafi einnig verið horft til starfsemi smálánafyrirtækja. 

Hundruð milljóna í eftirlit og umsýslu sem endar í verði til neytenda. 

Afleiðingarnar hafa þó orðið víðtækari en upphaflega var lagt upp með. Samkvæmt mati Bílgreinasambandsins nemur árlegur kostnaður bílgreinarinnar vegna þessa regluverks 250 til 450 milljónum króna. Sá kostnaður felur meðal annars í sér rekstur eftirlitskerfa, þjálfun starfsfólks, skráningu upplýsinga og innra eftirlit. 

Sá kostnaður endar að lokum í verði til neytenda. 

Á sama tíma verður almenningur fyrir verulegu ónæði við hefðbundin viðskipti. Fólk sem er að kaupa bifreið eða aðrar verðmætari vörur þarf að svara ítarlegum spurningum um fjármál sín og framvísa gögnum sem almennt er ekki krafist erlendis við sambærileg kaup. 

Markmið reglna um varnir gegn peningaþvætti eru mikilvæg. Fyrirtæki vilja taka þátt í ábyrgum viðskiptaháttum og stuðla að traustu regluverki. En það breytir ekki því að reglur þurfa að vera hóflegar, skýrar og í samræmi við raunverulega áhættu. 

Alþingi getur einfaldlega dregið úr álaginu 

Alþingi hefur því tækifæri til að endurmeta hvort íslenskt regluverk hafi gengið lengra en nauðsynlegt er. Með einfaldari og markvissari reglum væri hægt að draga úr kostnaði fyrirtækja, minnka ónæði fyrir almenning og bæta rekstrarskilyrði án þess að slakað sé á meginmarkmiðum eftirlitsins.

 

Greinargerð SVÞ um tilkynningaskyldu bifreiðaumboða, sölu og lánamiðlara – Hlaða niður HÉR!
Sjá frétt Morgunblaðsins HÉR!
Sjá frétt á DV HÉR!
Sjá viðtal á Bylgjunni, Reykjavik síðdegis HÉR!

Upptökur frá Alþingi um málið.

 Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður

UPPFÆRT 22.05.2026

UMFJÖLLUN MORGUNBLAÐSINS Í DAG 22. 05. 2026

114 nýir bílar á viku en tímabundin áhrif skekkja markaðsmynd

114 nýir bílar á viku en tímabundin áhrif skekkja markaðsmynd

Um 114 nýir bílar bætast vikulega við umferðina

Á hverri viku bætast um 114 nýir fólksbílar við umferðina á Íslandi samkvæmt gögnum Bílgreinasambandsins (BGS). Þetta kom fram í viðtali við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra SVÞ og Bílgreinasambandsins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 28. apríl sl. – hlustaðu á viðtalið HÉR! 

Í viðtalinu fór Benedikt yfir þróun nýskráninga og benti á að þrátt fyrir að tölurnar sýni stöðugan straum nýrra bíla inn á markaðinn þurfi að setja þær í samhengi.  Þessi þróun tengist beint þeim tölum sem BGS birtir mánaðarlega.

Í viðtalinu lagði Benedikt áherslu á að mikilvægt væri að lesa í þessar tölur með varúð. Nýskráningar endurspegla ekki endilega stöðu markaðarins á hverjum tíma, þar sem innflutningur og skráningar geta færst til í tíma eftir regluverki og skattaumhverfi.

_________________________

Á síðustu fimm árum hafa að meðaltali verið nýskráðir um 17 þúsund fólksbílar á ári hér á landi  á meðan afskráningar hafa verið um 9 þúsund að meðaltali.

 

 

 

 

 

 

 

Það þýðir að nettófjölgun fólksbíla nemi um 8 þúsund fólksbílum á ári eða um 114 fólksbílum í viku á landsvísu. Vert er þó að hafa í huga að hér er ekki tekið tillit til þess hvort bílarnir séu í raun í umferð né hvar þeir eru nýttir. Þróunin síðustu ár sýnir að bílaflotinn heldur áfram að stækka þrátt fyrir sveiflur milli einstakra ára.

 

Gjaldabreytingar geta hraðað rafbílavæðingu – en áhrifin verða misjöfn

Gjaldabreytingar geta hraðað rafbílavæðingu – en áhrifin verða misjöfn

Breytingar á vörugjöldum bifreiða geta haft veruleg áhrif á þróun bílamarkaðarins á næstu misserum, þó að enn sé of snemmt að draga endanlegar ályktanir. Þetta segir Íris Hannah Atladóttir, hagfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, í viðtali í sérstöku bílablaði Morgunblaðsins í dag 20. janúar 2026.

„Tengiltvinnbílar hafa gagnast mörgum Íslendingum vel, og hjálpað þeim að taka skref í átt til rafvæðingar: Það geta verið alls konar ástæður að baki því hversvegna það hentar fólki ekki endilega að velja 100% rafmagnsbíl“ segir Íris.

Sjá viðtal við Írisi hér fyrir neðan:
Gjaldabreytingar geta hraðað rafbílavæðingu - Bílablað Morgunblaðsins 20.01.2026

Daði má leiðrétta!

Daði má leiðrétta!

Það er óhætt að segja að margir innan bílgreinarinnar hafi hváð þegar þeir hlýddu á orð fjármálaráðherra.

Miðvikudaginn 13. janúar 2026 var birt frétt á Vísi þar sem fjallað var um viðbrögð fjármála- og efnahagsráðherra vegna tíðinda af spám greiningardeilda bankanna um þróun verðbólgu í janúar. Í fréttinni mátti finna myndband með viðtali við ráðherra þar sem hann sagðist ekki rengja spá Landsbankans um 0,7 prósentustiga hækkun verðbólgu sem ætti að miklu leyti rót sína að rekja til þróunar á verðlagningu fólksbifreiða. Í viðtalinu sagði ráðherra m.a. eftirfarandi:

Það er hins vegar þannig að núna um áramótin eru ekki bara að verða breytingar á vörugjöldum heldur er það líka þannig að verð á bílum hefur verið að hækka alþjóðlega þannig að ég ætla ekki að rengja spánna en þetta er meira en það sem við höfðum gert ráð fyrir.

Stöðugt verð þrátt fyrir að ráðherra segi annað

Það er óhætt að segja að margir innan bílgreinarinnar hafi hváð þegar þeir hlýddu á þessi orð þar sem þeir telja sig ekki hafa orðið vara við þessa alþjóðlegu verðþróun ráðherrans. Nægir því til stuðnings að benda á að ekkert í fyrirliggjandi gögnum Hagstofu Íslands gefur til kynna að innkaupsverð bifreiða hafi farið hækkandi svo einhverju nemi að undanförnu. Sömu sögu segja gögn sem endurspegla þróun kaupverðs frá Hagstofu Íslands, Eurostat og Evrópska Seðlabankanum. Þvert á móti má halda því fram að verð hafi verið óvenjulega stöðug, a.m.k. frá byrjun árs 2024, og litlum breytingum tekið eftir að verð hækkuðu á árunum í kringum heimsfaraldur og upphaf Úkraínustríðsins. Þá hafa erlendir fjölmiðlar sagt í fréttum frá spám greiningaraðila sem eru heilt yfir á þeirri skoðun að verðstöðugleika muni áfram gæta á alþjóðavísu en verð fólksbifreiða muni þó áfram verða há árið 2026.

Ekki brugðist við

Það má hins vegar segja í hálfkæringi að ákveðið sannleikskorn sé fólgið í orðum ráðherra ef horft er til framtíðarþróunar innkaupsverðs nýrra tengiltvinnbifreiða eftir að hærra vörugjaldi hefur við það verið bætt. Þannig vill nefnilega til að SVÞ og Bílgreinasambandið bentu efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis ítrekað og með rökstuddum hætti á að gera þyrfti breytingar á tillögum nefndarinnar, um hækkun vörugjalds, í ljósi breytinga á alþjóðlegri prófunaraðferð tengiltvinnbifreiða. Við því var hins vegar ekki nægilega brugðist og af þeim sökum mun hækkun vörugjalda koma mun harðar niður á kaupendum slíkra bifreiða en annarra á næstu árum.

Á þennan hátt má sumsé halda því fram að þróun á sviði prófunaraðferða í samblandi við innlent fyrirkomulag vörugjalds muni leiða til mikillar hækkunar bæði innanlands sem og í öðrum þeim ríkjum sem leggja skatta á eigendur ökutækja með vísan til skráðrar losunar, a.m.k. að því marki sem þau hafa ekki brugðist við og lagfært fyrirkomulag skattlagningarinnar til mótvægis. Með svona leiðréttingu, sem er sett fram af ákveðinni lagni, getur ráðherra áfram haldið því fram að verðþróun fólksbifreiða hér á landi tengist þróun alþjóðlega.

Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ og Bílgreinasambandsins.

Grein Benedikts S. Benediktssonar má lesa í Viðskiptablaðinu Smelltu HÉR!