Innlend netverslun í miklum vexti
Rannsóknarsetur verslunarinnar birti í dag, 20. júní, nýjar tölur um kortaveltu Íslendinga og innlenda netverslun. Þar kemur fram að innlend netverslun sækir enn í sig veðrið.
Rannsóknarsetur verslunarinnar birti í dag, 20. júní, nýjar tölur um kortaveltu Íslendinga og innlenda netverslun. Þar kemur fram að innlend netverslun sækir enn í sig veðrið.
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 verða afhent í fjórða sinn miðvikudaginn 9. október fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram í Hörpu á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaunin.
Óskað er eftir tilnefningum fyrir 7. september nk. með tölvupósti á sa@sa.is merktum: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.
Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Sjáðu frétt frá Umhverfisdegi atvinnulífsins 2019 á vef SA hér.
Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað þínar síður fyrir aðildarfyrirtæki sín.
Á síðunum eru upplýsingar sem tengjast aðild þeirra að samtökunum og farvegir fyrir fyrirspurnir og verkbeiðnir. Unnt er að velja áskriftir að útgefnu efni, uppfæra tengiliði og skoða fjárhagslegar upplýsingar.
Notendur skrá sig inn sem einstaklingar með rafrænu skilríkjunum sínum og geta í kjölfarið veitt samstarfsmönnum aðgangsheimild.
Þú finnur þínar síður hér á atvinnulif.is
Innskráning á þínar síður er efst til hægri í leiðarstiku á forsíðu vefs SVÞ og efst til hægri á forsíðu vefs SA. Guðrún Reynisdóttir, verkefnastjóri, svarar spurningum og tekur við ábendingum á netfanginu minarsidur@sa.is.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ skrifar:
Alþingi hefur samþykkt samhljóða sem lög frumvarp til laga um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur. Er hér um að ræða innleiðingu á Evrópulöggjöf um þetta efni sem er búin að vera í undirbúningi mjög lengi. Eins og komið hefur fram í fyrri fréttum frá SVÞ um þetta mál, þá hefur baráttan fyrir lækkun milligjalda í kortaviðskiptum verið eitt helsta hagsmunamál hagsmunasamtaka verslunarinnar í Evrópu um langt árabil. Lögin taka gildi 1. september n.k.
Meginefni laganna er að sett eru hámörk á milligjöld vegna neytendagreiðslukorta, 0,2% af fjárhæð greiðslu vegna debetkorta og 0,3% vegna kreditkorta. Milligjöldin er sú þóknun sem útgefendur greiðslukorta, oftast bankar eða sparisjóðir, fá greitt frá færsluhirði (á Íslandi einkum Borgun, Valitor og Kortaþjónustan). Sérstakt þjónustugjald kemur síðan til viðbótar í öllum kortaviðskiptum, en það er gjaldið sem færsluhirðir fær greitt frá söluaðila fyrir þjónustu sína.
Söluaðilar eru að jafnaði ekki í góðri stöðu til að hafna algengum greiðslukortum, þrátt fyrir mikinn kostnað af notkun þeirra, enda eru greiðslukort orðin langalgengasti greiðslumátinn. Korthafar hafa að sama skapi yfirleitt lítinn eða engan hvata til að velja ódýrari greiðslumáta enda er kostnaðinum venjulega jafnað niður á neytendur. Hérlendis birtist það m.a. í mikilli notkun kreditkorta þótt kostnaður vegna notkunar þeirra sé meiri en vegna debetkorta.
Sú þóknun sem verslunin og aðrir söluaðilar hafa þurft að greiða í milligjöld og þjónustugjöld fyrir notkun greiðslukorta í viðskiptum, hefur lengi verið mikill þyrnir í þeirra augum. Samkeppnisyfirvöld hér á landi hafa brugðist við þessum aðstæðum. Þann 18. desember 2014 tilkynnti Samkeppniseftirlitið um að Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., Borgun hf. og Valitor hf. hefðu hvert fyrir sig gert sátt við eftirlitið vegna rannsóknar þess á samkeppnishömlum á greiðslukortamarkaði. Sú sátt birtist í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2015 frá 30. apríl 2015 þar sem fyrirtækin féllust m.a. á hámörk á milligjöld vegna neytendagreiðslukorta, 0,2% fyrir debetkort og 0,6% fyrir kreditkort. Hámörkin voru að hluta til hugsuð sem aðlögun að ákvæðum í fyrirhugaðri reglugerð Evrópusambandsins um milligjöld, þeirri sem nú hefur verið lögfest hér á landi.
Samtök verslunar og þjónustu brýna fyrir aðildarfyrirtækjum sínum að fylgjast náið með því að tilskyldar breytingar verði á milligjöldum í kortaviðskiptum þegar lögin taka gildi þann 1. september n.k.
Hvenær: Fimmtudaginn 12. september kl. 8:30-12:30
Hvar: Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, Reykjavík
Í september næstkomandi verður boðið upp á einstakt námskeið frá Ritz Carlton á sérkjörum fyrir SVÞ félaga. Ritz Carlton eru margrómaðir fyrir frábæra þjónustu og hafa í næstum tvo áratugi kennt öðrum fyrirtækjum aðferðafræðina til að tryggja topp þjónustugæði. Meðal þeirra framúrskarandi fyrirtækja sem hafa notað aðferðafræði Ritz Carlton við mótun á allri sinni þjónustu eru Apple, en verslanir þeirra vekja heimsathygli fyrir frábæra þjónustu, með hlutum eins og „genius bar“ og fleiru.
Stjórnandi frá Ritz Carlton mun leiða hálfs dags vinnustofu sem hjálpar þátttakendum, á hagnýtan hátt, að láta sín fyrirtæki skara framúr með fyrsta flokks þjónustu.
Hvenær: fimmtudaginn 12. september, kl. 8:30-12:30 – Ath! Aðeins þessi eina dagsetning og takmarkað sætaframboð.
Hvar: Hilton Reykjavík Nordica
Fyrir hverja hentar þetta: Námskeiðið er fyrir alla sem stjórna, móta eða hafa áhrif á þjónustuupplifun viðskiptavina fyrirtækja af öllum stærðum, og í öllum atvinnugreinum.
Verð: Verð fyrir SVÞ félaga er 54.900 kr. per þátttakanda ef bókað er fyrir 7. júní (annars 69.900 kr).
SVÞ félagar eiga að auki kost á tveggja klst. framhaldsvinnustofu þann 16. september þar sem þeir Guðmundur Arnar Guðmundsson frá Markaðsakademíunni og Árni Árnason frá Árnasonum fara dýpra í efni vinnustofunnar. Nánari upplýsingar síðar.
Takmarkað sætaframboð á framhaldsvinnustofuna – fyrstir koma fyrstir fá!
Umhverfisstofnun og Samtök verslunar og þjónustu bjóða til kynningarfundar um sæfivörur og skyldur framleiðenda og innflytjenda.
Hvenær: miðvikudaginn 29. maí kl. 10:30-11:30
Hvar: Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Aðildarfyrirtækjum Samtaka iðnaðarins og Félags atvinnurekenda er einnig boðið til fundarins.
Fyrir hverja er fundurinn?
Fyrirtæki innan SVÞ, SI og FA sem flytja inn, markaðssetja og nota sæfivörur.
Hvað eru sæfivörur?
Sæfivörur (biocides) eru efnavörur sem innihalda eitt eða fleiri virk efni sem ætlað er að eyða hættulegum lífverum, bægja þeim frá eða gera þær skaðlausar með efna- eða líffræðilegum aðferðum. Sæfivörur skiptast í 22 vöruflokka, sem tengjast notkun þeirra. Þar er að finna m.a. sótthreinsandi vörur fyrir menn og dýr, einnig vörur til sótthreinsunar á yfirborðsflötum, viðarvarnarefni, skordýraeyða, nagdýraeitur, gróðurhindrandi vörur (t.d. botnmálning á skipum), og ýmis rotvarnarefni til nota í iðnaði.