25/01/2019 | Fréttir, Greinar, Í fjölmiðlum
Eftirfarandi grein eftir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóra SVÞ, birtist í Fréttablaðinu í dag, 25. janúar:
Í nýliðnum desember voru liðin sjö ár frá því að Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) sendu erindi til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), þar sem samtökin kvörtuðu formlega undan innleiðingu íslenskra stjórnvalda á matvælalöggjöf EES-samningsins. Tilefni þessarar kvörtunar var, eins og flestum ætti nú að vera kunnugt, þau höft sem lögð eru á innflutning á fersku kjöti, þar sem gert var ráð fyrir því að allt kjöt skuli vera í frosti í þrjátíu daga, áður en vogandi væri að bjóða það íslenskum neytendum.
Í október sl. fékkst loks endanleg niðurstaða í þessa löngu baráttu SVÞ, þegar Hæstiréttur Íslands kvað upp þann dóm, að umrædd höft á innflutningi á fersku kjöti hafi verið í andstöðu við ákvæði EES-samningsins og þ.a.l. falið í sér samningsbrot af hálfu hérlendra stjórnvalda. Var þessi niðurstaða staðfesting á dómi héraðsdóms í málinu, en jafnframt hafði EFTA dómstóllinn kveðið upp efnislega sambærilegan dóm í máli Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu. Á öllum stigum var tekið undir þær kvartanir sem SVÞ settu fram í upphafi. Framganga íslenska ríkisins í þessum málarekstri öllum er kapítuli út af fyrir sig, en þrátt fyrir að hafa eytt tugum milljóna króna í málsvörn sína, tókst því ekki að sýna fram á nein haldbær rök fyrir umræddum innflutningstakmörkunum. Framganga íslenska ríkisins í málinu getur því ekki kallast annað en hrein sneypuför.
Í umræðunni undanfarnar vikur hafa margir kosið að drepa málinu á dreif og þar með draga athyglina frá því sem er aðalatriði þessa máls, sem er hin skýra og ótvíræða dómsniðurstaða. Umræðan hefur meira snúist um sýklalyfjaónæmi og um matvælaöryggi almennt. Sú umræða á alltaf rétt á sér, óháð umræddri dómsniðurstöðu. Stjórnvöld eiga, ekki frekar en aðrir, annan kost en að virða niðurstöðu dómstóla. Niðurstaðan í þessu dómsmáli er eins skýr og verða má og hljóta viðbrögð stjórnvalda, í formi viðeigandi lagafrumvarpa, að verða lögð fram nú þegar Alþingi kemur saman á ný.
Það er aðalatriði þessa máls.
22/01/2019 | Fréttir, Viðburðir
Fyrirlesari: Rúna Magnúsdóttir, stjórnendamarkþjálfi og alþjóðlegur fyrirlesari
Hvar: Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Hvenær: Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 8:30-10:00
Að ganga í takt – eldmóðurinn, gleðin og vinnustaðamenningin er létt og skemmtileg örvinnustofa þar sem farið verður yfir yfir áhrifaríkar leiðir til að efla innra brand fyrirtækisins, bæta starfsandann og búa til vinnustaðamenningu þar sem allir innan fyrirtækisins finna til sín og ganga í takt. Útkoman er:
- Leiðarvísir sem eflir og tengir starfsfólk sterkari böndum við fyrirtækið
- Innsýn í áhrifaríkar leiðir sem opna jákvæð og gefandi samskipti milli starfsmanna og viðskiptavina
- Innsýn í hvernig starfsmenn þínir hafa nú þegar áhrif á vinnustaðamenninguna
Þátttakendur fylla út persónulegan prófíl sem gefur þeim innsýn í þeirra persónuleika og eintak af bókinni The Story of Boxes: The Good, The Bad and The Ugly, þar sem m.a. er farið í afleiðingar þeirra mannlegu hegðunar að setja sjálfa(n) sig og aðra í afmarkandi box. Þessi hugsun kemur oft í veg fyrir að hægt sé að efla starfsandann og fá fólk til að tengjast ytra brandi fyrirtækisins.
Rúna Magnúsdóttir er stjórnendamarkþjálfi og alþjóðlegur fyrirlesari, stofnandi og framkvæmdastjóri The Change Makers, meðstofnandi #NoMoreBoxes og annar höfunda bókarinnar The Story of Boxes: The Good, The Bad and The Ugly. Rúna hefur haldið fyrirlestra og staðið fyrir námskeiðum og vinnustofum víða um heim, nú síðast #NoMoreBoxes Breakfast Club í sendiráðum Íslands í London og Washington auk fyrirhugaðs viðburðar í Georgetown University. Rúna hefur komið fram í fjölmiðlum á borð við Forbes, The Times, Metro og Just Entrepreneur.
Fyrir hverja hentar þessi fyrirlestur: Verslunar- og þjónustufyrirtæki sem vilja efla vinnustaðarmenninguna og tryggja að starfsmenn gangi í takt við stefnu fyrirtækisins.
Frítt fyrir félagsmenn en aðrir greiða kr. 2.500,-
Athugið að boða þarf forföll í síðasta lagi á hádegi daginn fyrir námskeið með tölvupósti á svth@svth.is, annars fæst ekki endurgreitt.
Skráningu lýkur kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 4. febrúar.
Vinsamlegast smelltu á hnappinn til að fara á skráningarformið. Athugið að ef þú ert ekki félagsmaður, þá biðjum við þig að ganga frá greiðslu í gegnum hnappinn sem birtist með skráningarstaðfestingunni.

22/01/2019 | Fréttir
Þóranna K. Jónsdóttir hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Starfið er nýtt og merki um þá áherslu sem samtökin leggja á öfluga upplýsingamiðlun og notkun stafrænna miðla.
Þóranna hefur verið sjálfstætt starfandi markaðsráðgjafi um árabil með áherslu á stefnumótun markaðsmála og stafræna markaðssetningu. Þóranna hefur starfað með fjölbreyttum hópi fyrirtækja svo sem AwareGO, Gagarín, Opna háskólanum, Sóley Organics, SimplyBook.me, RóRó o.fl.
Hún hefur verið virk í sprota- og nýsköpunarumhverfinu og hefur m.a. starfað með Nýsköpunarmiðstöð, verið mentor hjá Icelandic Startups o.fl. Áður starfaði Þóranna sem verkefnastjóri hjá Kadeco, rak eigið fyrirtæki í upplýsingatækniþjónustu, í markaðsmálum hjá Sparisjóðnum, hjá auglýsingastofunni Góðu fólki og hjá auglýsingastofunni Publicis í London.
Þóranna er með MBA gráðu með áherslu á stefnumótun markaðsmála frá University of Westminster í London og er vottaður sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu frá DigitalMarketer.
18/01/2019 | Fréttir, Greining
Samantekt
Hrávörumarkaður er að margra áliti meira spennandi en mörg önnur svið viðskipta. Ekki þarf að tíunda mikilvægi hrávöruviðskipta fyrir bæði framleiðendur og neytendur. Verðbólgan var undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands samfellt frá febrúar 2014 til mars 2018, m.a. vegna verðlækkunar olíu og annarra hrávara. Lækkandi hrávöruverð á heimsmarkaði hafði áhrif á vöruverð innfluttra neysluvara. Lægra hrávöruverð hafði jafnframt óbein áhrif á hérlent söluverð vara vegna lægri kostnaðar í innlendri matvælaframleiðslu sem háð er innflutningi á erlendum hrávörum. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða þróun og horfur á hrávörumarkaði. Samkvæmt skýrslu Alþjóðabankans, sem kom út í byrjun árs um horfur í heimshagkerfinu, er því spáð að hrávöruverð verði stöðugt á þessu ári eftir miklar sveiflur á síðasta ári. Olíuverð var að meðaltali um 68 Bandaríkjadalir fyrir fatið árið 2018 eða um 30% hærra en árið 2017. Alþjóðabankinn spáir því að olíuverð verði að meðaltali um 67 Bandaríkjadalir fyrir fatið á yfirstandandi ári.
Hér má nálgast greininguna í heild sinni
16/01/2019 | Fréttir
Sara Dögg Svanhildardóttir hefur verið ráðin til SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu sem skrifstofustjóri og í umsjón með mennta- og fræðslumálum.
Sara Dögg hefur áralanga reynslu af stjórnun og menntamálum sem skólastjóri og við verkefnastjórnun grunnskólastarfs Hjallastefnunnar. Hún er grunnskólakennari frá KHÍ og með frekara nám í verkefnastjórnun og mannauðsstjórnun. Sara Dögg kom að uppbyggingu tveggja grunnskóla hjá Hjallastefnunni sem og stofnun og stjórnun Arnarskóla. Þess utan hefur Sara Dögg starfað sem ráðgjafi í menntamálum og haft umsjón með fræðslumálum fyrir ýmis félagasamtök.
15/01/2019 | Fréttir
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu fagna samkomulagi um nýja námsleið til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð sem boðið verður upp á hjá Keili – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs frá næsta hausti.
Um leið og samtökin óska Keili til hamingju, lýsa þau sérstakri ánægju sinni með aðkomu Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálamálaráðherra að málinu, enda brýtur námsleiðin blað í sögu framhaldsmenntunar á Íslandi. Námið er til merkis um breyttar áherslur í menntamálum og aukið samstarf menntakerfisins og atvinnulífsins.
Tölvuleikjaiðnaðurinn á heimsvísu veltir í dag meira en bæði kvikmyndaiðnaðurinn og tónlistariðnaðurinn og er spáð áframhaldandi vexti. Ísland á nú þegar öflug fyrirtæki í þessum geira, en með þessu skrefi opnum við möguleika á enn meiri þátttöku Íslands í þessum öfluga iðnaði. Námið verður að auki fjölbreytt og hagnýtt og má leiða líkum að því að það nýtist nemendum ekki bara í tölvuleikjaiðnaðinum heldur í ýmsum skapandi greinum.
Að auki ber að fagna námsframboði sem þessu sem líklegt er að höfði til hópa sem í dag virðast ekki finna sig í hefðbuna skólakerfinu. Á það sérstaklega við um drengi, en brottfall þeirra úr framhaldsnámi veldur miklum áhyggjum.
Keilir – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er aðili að Samtökum verslunar og þjónustu.