Fréttamolar SVÞ júní 2026

Fréttamolar SVÞ júní 2026

Júní einkenndist af fjölbreyttri umfjöllun um rekstrarumhverfi fyrirtækja, breytingar á regluverki og sjálfbærnimál, auk greina um þróun vinnumarkaðarins og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.
Á vettvangi hagsmunagæslunnar komu meðal annars til umfjöllunar áhrif EUDR-reglugerðarinnar, hafnalög, námsmat í grunnskólum og framtíð úrgangsmála.

Smelltu á blaðið hér fyrir neðan.

FRÉTTAMOLAR SVÞ JÚNÍ 2026

 

SVÞ vara við óskýrri heimild til hækkunar hafnargjalda

SVÞ hafa skilað umsögn um áform Innviðaráðuneytisins um breytingar á hafnalögum sem snúa að gjaldtöku sveitarfélagahafna. Samtökin leggja áherslu á að skýrt verði afmarkað hvort um sé að ræða þjónustugjöld eða skattlagningu og að gjaldtaka verði áfram tengd raunverulegum kostnaði við veitta þjónustu.

Í umsögninni benda SVÞ á að samkvæmt meginreglum stjórnsýsluréttar verði þjónustugjöld að standa í beinum tengslum við kostnað þeirrar þjónustu sem veitt er. Ef gjaldtaka fer umfram þann kostnað eða byggir á of víðtækum heimildum geti hún í reynd talist skattheimta sem krefst skýrrar lagaheimildar.

Samtökin telja að ekki sé nægilega ljóst af áformum ráðuneytisins hvort breytingarnar eigi að fela í sér breytingar á þjónustugjöldum eða skattlagningu. Af þeim sökum vara þau við því að hafnargjöld verði aftengd kostnaði við veitta þjónustu, enda geti slíkt skapað lagalega óvissu og haft áhrif á réttarstöðu fyrirtækja og annarra notenda hafna.

Jafnframt leggja SVÞ til að lögfest verði skýr réttindi notenda hafna til upplýsinga um kostnað og forsendur gjaldtöku. Að mati samtakanna er gagnsæi í gjaldskrárákvörðunum mikilvægt til að tryggja traust og fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki sem treysta á hafnir landsins í starfsemi sinni.

SVÞ leggja áherslu á að við breytingar á hafnalögum verði gætt að réttarvernd gjaldenda og að gjaldtökuheimildir verði hvorki of víðtækar né óskýrar.

Smelltu –> Umsögn SVÞ mál samr 93-2026 áform hafnarlög

Umsögn SSK um fyrirhugaðar breytingar á námsmati í grunnskólum

SSK leggja áherslu á skýr markmið fremur en breytingu á einkunnakerfi

SSK – Sjálfstæðir skólar hafa skilað umsögn um fyrirhugaðar breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla þar sem lagt er til að námsmat verði sett fram með tölueinkunnum í stað bókstafa. Samtökin leggja áherslu á að námsmat eigi fyrst og fremst að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar og gagnlegar upplýsingar um nám, framfarir og hæfni.

Í umsögninni benda SSK á að tölueinkunnir geti verið aðgengilegar og auðveldað samanburð, en að þær einar og sér gefi ekki fullnægjandi mynd af fjölbreyttri hæfni nemenda. Þættir á borð við rökhugsun, skilning, samvinnu, frumkvæði og skapandi hugsun krefjist áfram lýsandi námsmats og faglegs mats kennara.

Samtökin leggja áherslu á að ef aukin notkun tölueinkunna verður tekin upp þurfi að skilgreina með skýrum hætti hvaða hæfni, þekking og færni liggur að baki hverri einkunn. Án slíkra skilgreininga sé hætta á að námsmatið verði óskýrt og upplýsingagildi þess takmarkað.

SSK benda jafnframt á að skólar hafi á undanförnum árum lagt verulega vinnu í að þróa námsmat út frá hæfniviðmiðum og innleiða núverandi kerfi. Því sé mikilvægt að breytingar séu vel undirbyggðar og sýnt fram á hvernig þær bæta upplýsingagjöf og styðja betur við nám nemenda.

Að mati samtakanna er stærsta áskorunin ekki hvort notaðir séu bókstafir eða tölur, heldur að hæfniviðmið og námsmarkmið séu skýr, afmörkuð og mælanleg. Slík vinna sé lykillinn að gagnlegra og samræmdara námsmati.

Smelltu –> Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla

Innviðaráðuneytið hefur enn ekki innleitt reglur sem auðvelda orkuskipti í sendibílaflotum

Innviðaráðuneytið hefur enn ekki innleitt reglur sem auðvelda orkuskipti í sendibílaflotum

Evrópskt regluverk hefur um árabil gert ráð fyrir undanþágu vegna aukinnar þyngdar rafhlaðna í rafknúnum ökutækjum. Sú aðlögun hefur hins vegar ekki enn skilað sér að fullu í íslenskt regluverk. SVÞ og Bílgreinasambandið hafa ítrekað bent á að þessi tregða hamli orkuskiptum og geri fyrirtækjum erfiðara fyrir að fjárfesta í rafknúnum atvinnubílum.

Í umfjöllun Morgunblaðsins 13. júní sl., kemur fram að Innviðaráðuneytið hafi um langt skeið haft málið til skoðunar án þess að breytingar hafi tekið gildi.

Evrópa hefur þegar brugðist við vandanum

Árið 2018 voru samþykktar breytingar á evrópskum reglum sem gera aðildarríkjum kleift að leyfa ökumönnum með B-ökuréttindi að aka rafknúnum ökutækjum og öðrum ökutækjum sem nota aðra orkugjafa, allt að 4.250 kg heildarþyngd. Tilgangurinn var að tryggja að aukin þyngd rafhlaðna yrði ekki hindrun í vegi orkuskipta.

Þessi heimild hefur verið tekin upp í fjölmörgum Evrópuríkjum. Á Íslandi gilda hins vegar enn eldri þyngdarmörk, sem þýðir að fyrirtæki geta þurft að afla starfsfólki aukinna ökuréttinda til að aka rafknúnum sendibílum sem gegna í reynd sama hlutverki og sambærilegir dísilbílar.

Óþarfa hindrun fyrir fyrirtæki

SVÞ hefur bent á að um sé að ræða regluverkshindrun fremur en öryggismál. Burðargeta og notkun ökutækjanna breytast ekki, heldur vegur rafbúnaðurinn meira en hefðbundinn aflrásarbúnaður.

Afleiðingin er aukinn kostnaður, meira flækjustig í rekstri og minni hvati til að endurnýja bílaflota með umhverfisvænni lausnum. Þetta hefur sérstaklega áhrif á fyrirtæki í verslun, þjónustu, flutningum og dreifingu sem treysta á létta atvinnubíla í daglegum rekstri.

Kallað eftir skýrum svörum

SVÞ telur mikilvægt að íslenskt regluverk fylgi þeirri þróun sem þegar hefur átt sér stað víða í Evrópu. Með því yrði dregið úr óþarfa hindrunum, fyrirtækjum auðveldað að ráðast í orkuskipti og stutt betur við loftslagsmarkmið stjórnvalda.

UPPFÆRSLA 23/06/26 – Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskirteini nr. 830/2011 
og frétt hjá Stjórnarráðinu HÉR!

______________________________

Umsögn SVÞ um upptöku EUDR-reglugerðarinnar í EES-samninginn

SVÞ vara við kostnaðarhækkunum vegna EUDR-reglugerðarinnar

SVÞ hafa skilað umsögn til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um fyrirhugaða upptöku EUDR-reglugerðar Evrópusambandsins í EES-samninginn. Reglugerðin miðar að því að draga úr eyðingu skóga með auknum kröfum um rekjanleika tiltekinna vara og hráefna sem flutt eru inn á Evrópumarkað.

Í umsögninni kynna SVÞ niðurstöður greiningar á innflutningi vara sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Greiningin bendir til þess að reglugerðin geti haft veruleg áhrif á íslensk fyrirtæki sem reiða sig á innflutning frá löndum utan EES, meðal annars vegna aukinnar stjórnsýslu og breyttra innkaupaleiða.

SVÞ benda á að fyrirtæki kunni í auknum mæli að færa viðskipti sín til birgja innan EES til að draga úr áhættu og umsýslu. Slík tilfærsla gæti þó leitt til hærri innkaupakostnaðar og takmarkaðra vöruframboðs. Greining samtakanna bendir til þess að árlegur viðbótarkostnaður íslenskra innflytjenda gæti numið allt að þremur milljörðum króna ef innflutningur færist í stórum stíl frá ríkjum utan EES yfir til EES-ríkja.

Sérstaklega er fjallað um áhrif reglugerðarinnar á kaffimarkaðinn, þar sem íslensk fyrirtæki hafa um árabil byggt upp viðskiptasambönd við framleiðendur í Suður-Ameríku og Afríku. SVÞ telja að nýjar upplýsingakröfur geti gert slík viðskipti flóknari og kostnaðarsamari, með mögulegum áhrifum á verð og framboð til neytenda.

SVÞ leggja áherslu á að við innleiðingu nýs regluverks verði metin áhrif þess á íslenskt atvinnulíf og neytendur, þannig að markmið um sjálfbærni náist án þess að óþarfa kostnaður og flækjustig leggist á fyrirtæki og heimili.

Smelltu –> Umsögn SVÞ til URN EUDR í EES

Þingsályktun um afnám gullhúðunar er mikilvægt skref í rétta átt.

Þingsályktun um afnám gullhúðunar er mikilvægt skref í rétta átt.

Þingsályktunartillaga um einföldun regluverks og afnám svokallaðrar gullhúðunar markar mikilvægan áfanga í umræðu um samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Tillagan, sem lögð var fram á Alþingi 5. júní 2026, felur í sér að ráðherra verði falið að leggja fram frumvarp um afnám gullhúðunar og fara yfir gildandi regluverk með það að markmiði að draga úr óþarfa íþyngjandi reglum.

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa lengi bent á að íslensk stjórnvöld hafi í sumum tilvikum gengið lengra við innleiðingu EES-reglna en nauðsynlegt er. Slík gullhúðun getur aukið kostnað fyrirtækja, flækt rekstur og dregið úr samkeppnishæfni þeirra gagnvart fyrirtækjum í öðrum EES-ríkjum.

Reglur um peningaþvætti hafa verið í brennidepli

Þann 28. maí birtu SVÞ, Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda sameiginlega grein þar sem bent var á að við innleiðingu reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti hefði Alþingi í ákveðnum atriðum gengið lengra en lágmarkskröfur Evrópureglna kveða á um. Þar var meðal annars bent á að fyrirtæki í bíla-, raftækja- og smásölugeiranum hefðu þurft að taka upp umfangsmikið eftirlit, framkvæma ítarlegar áreiðanleikakannanir og sæta verulegri sektaráhættu.

Í greininni var jafnframt bent á að kostnaður vegna þessa regluverks gæti numið hundruðum milljóna króna árlega og að fyrirtæki hefðu þegar fengið boðaðar sektir sem nema tugum milljóna króna.

Gullhúðun eykur kostnað fyrirtækja, flækir rekstur og dregur úr samkeppnishæfni þeirra.

Fyrir fyrirtæki snýst málið ekki um að draga úr kröfum um neytendavernd, eftirlit eða varnir gegn peningaþvætti. Málið snýst um að reglur séu markvissar, skýrar og í samræmi við þær skuldbindingar sem Ísland hefur tekið á sig.

Einfaldara regluverk getur dregið úr kostnaði, minnkað óþarfa stjórnsýslubyrði og styrkt samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Þess vegna fagnar SVÞ því að málið sé nú komið á dagskrá Alþingis.