15/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Verslun, Viðburðir
Vefverslanir: Sölubestun (e. Conversion rate optimization). Hvernig nærðu hámarks sölu í vefversluninni þinni?
Á námskeiðinu lærir þú hvernig þú getir getur gert einfaldar breytingar á vefsíðunni þinni til þess að auka sölu og ánægju viðskiptavina. Farið verður yfir vefgreiningar og hvernig hægt er að sjá hvort og hvar vandamál eru sem þarf að laga. Í kjölfarið verður farið yfir algengustu atriðin sem hægt er að bæta til þess að auka sölu og að lokum verður farið yfir aðferðafræði til að vera sífellt að bæta vefinn með marvissum prófunum og bestun.
Kennari: Bragi Þór Antoníusson, markaðsstjóri Elko Bragi Þór hefur sérhæft sig stafrænni markaðssetningu og hefur unnið verkefni tengd sölu- og leitarvélabestun fyrir bílaleigur, bókunarvefi, vefverslanir ofl. Hann var ráðgjafi í markaðssetningu á netinu hjá Kapli markaðsráðgjöf, markaðsstjóri TripCreator sem er sölu- og bókunarvefur fyrir flugfélög og ferðaskrifstofur og er núna markaðsstjóri ELKO og er þar ábyrgur fyrir sölu í einni stærstu vefverslun landsins. Bragi hefur kennt námskeið í markaðssetninu á netinu og haldið fyrirlestra um stafræna markaðssetningu í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.
24. október kl. 9:00-12:00 í Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík
Frítt fyrir félagsmenn en aðrir greiða 4.000kr.
TILVALIÐ AÐ FYLGJA ÞESSU EFTIR MEÐ NÁMSKEIÐI UM LEITARVÉLABESTUN FYRIR VEFVERSLANIR 13. NÓVEMBER – SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSINGAR OG SKRÁ ÞIG
UPPSELT ER Á ÞETTA NÁMSKEIÐ!
Vertu á póstlistanum og fylgstu með á Facebook, Twitter og LinkedIn svo þú missir ekki af fleiri gagnlegum viðburðum hjá SVÞ!
09/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Viðburðir
Nú er búið að opna fyrir skráningu á þá viðburði sem staðfestir eru í fræðsludagskrá SVÞ haustið 2018. Í fræðsludagskránni verður byggt enn frekar ofan á námskeiðaröð frá síðasta vetri um Omnichannel, auk þess sem hún er innblásin af nýrri skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar, Íslensk netverslun – áhrif stafrænnar tækni og alþjóðlegrar samkeppni.
Hér geturðu séð yfirlit yfir fræðsludagskrá SVÞ, haustið 2018. Enn á þó eftir að bæta í dagskrána svo við hvetjum fólk til að fylgjast vel með á Facebook, Twitter, LinkedIn og að sjálfsögðu að vera vel skráð á póstlistann, til að missa ekki af neinu!
08/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Viðburðir
Byggðu upp sambandið við viðskiptavininn, lækkaðu snertingarkostnað og auktu sölu!
Markaðssetning með tölvupósti er vannýttasta markaðsaðferðin á íslenskum markaði, þrátt fyrir að rannsóknir sýni að hún er sú arðbærasta af öllum stafrænum markaðsaðgerðum.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
- Hvað markaðssetning með tölvupósti er og hvað hún getur gert
- Mismunandi tilgang tölvupóstsmarkaðssetningar, þ.m.t. þrjár tegundir tölvupóstsherferða
- Tölvupóstsmarkaðssetningu á mismunandi stigum í vegferð viðskiptavinarins
- Tengingu efnismarkaðssetningar og tölvupóstmarkaðssetningar
- Sjálfvirkni í tölvupóstsmarkaðssetningu
Hvenær: 20. nóvember kl. 9:00-12:00
Hvar: Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Kennari: Þóranna K. Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri SVÞ og markaðsráðgjafi. Þóranna hefur unnið með tölvupóstsmarkaðssetningu í fjölda ára og er vottaður sérfræðingur frá Digital Marketer í markaðssetningu með tölvupósti.
Frítt fyrir félaga í SVÞ. Aðrir greiða 4.000 kr.
SKRÁNING – Námskeið í áhrifaríkri markaðssetningu með tölvupósti
Þriðjudaginn 20. nóvember kl. 9:00-12:00
Vinsamlegast athugið. Flestir viðburðir á vegum SVÞ eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Í skráningarforminu hér fyrir neðan ert þú beðin(n) um að merkja við hvort fyrirtækið þitt er aðili að SVÞ eða ekki. Ef fyrirtækið er ekki aðili biðjum við þig vinsamlegast um að greiða fyrir viðburðinn á staðfestingarsíðunni sem birtist eftir skráningu.
08/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Viðburðir
Sigurður Svansson, einn af stofnendum SAHARA og yfirmaður stafrænnar deildar fyrirtækisins ásamt Elvari Andra Guðmundssyni, samfélagsmiðlafulltrúa hjá SAHARA munu halda erindi um Facebook spjallmenni (e.chatbots) og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þau spennandi tækifæri sem þeir bjóða upp á.
Markaðssetning í gegnum spjallforrit eins og Facebook Messenger hefur verið að aukast umtalsvert á síðustu misserum í takt við breytta hegðun neytenda á samfélagsmiðlum.
Í þessu breytingum felast spennandi tækifæri fyrir fyrirtæki, bæði í formi betra þjónustustigs með sjálfvirkum svörum við algengum spurning, virðisaukandi upplýsingagjöf, sölu og öðruvísi nálgunum til að tengjast núverandi og nýjum viðskiptavinum.
Á fyrirlestrinum munu þeir félagar fara almennt yfir notkunarmöguleika á spjallmennum, tæknilega hlið þeirra, reynslusögur frá fyrirtækjum og hugmyndir hvernig fyrirtæki gætu nýtt sér þessa nýju lausn.
Hvenær: 6. nóvember kl. 8:30-10:00
Hvar: Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Frítt fyrir félaga í SVÞ. Aðrir greiða 2.500 kr.
SKRÁNING – Fyrirlestur um Facebook Messenger Bots
Þriðjudaginn 6. nóvember kl. 8:30-9:00
Vinsamlegast athugið. Flestir viðburðir á vegum SVÞ eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Í skráningarforminu hér fyrir neðan ert þú beðin(n) um að merkja við hvort fyrirtækið þitt er aðili að SVÞ eða ekki. Ef fyrirtækið er ekki aðili biðjum við þig vinsamlegast um að greiða fyrir viðburðinn á staðfestingarsíðunni sem birtist eftir skráningu.
08/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Viðburðir
Upplifun viðskiptavina (Customer Journey) snýst um að mæla og greina alla þætti í kaupferli kúnnans.
Farið verður í hvernig ferðalag viðskiptavinar er séð með augum kúnnans og allir snertifletir verða greindir. Upplifanir geta verið jafn ólikar eins og samskiptarásirnar eru margar (vef, farsíma, síma, í verslun og fl.).
Er þitt fyrirtæki að greina skynjun viðskiptavinarins? Hvað er viðskiptavinurinn að gera og hvaða markmið, áhrif, væntingar og tilfinningar hefur hann af reynslu sinni?
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig fyrirtæki geta greint upplifun og kaupferli viðskiptavina (Customer Journey) til að koma auga á tækifæri til að bæta upplifun og greina mikilvægustu snertifletina, kanna sársaukastig og hvaða tækifæri séu til úrbóta og nýsköpunar. Notast verður við „Real case“ tölfræði til að mæla fyrri reynslu viðskiptavina.
Fyrirlesari: Diðrik Örn Gunnarsson stofnandi Stafrænu auglýsingastofunnar, stundakennari í HR og ráðgjafi hjá Zenter
Hvar: Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Fyrir hverja hentar þetta námskeið: Verslun og þjónustu
Frítt fyrir félaga í SVÞ. Aðrir greiða 2.500 kr.
Oops! We could not locate your form.
07/10/2018 | Fréttir, Umhverfismál, Viðburðir
Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 17. október 2018 í Hörpu Norðurljósum kl. 8.30-12.
Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Sameiginleg dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til 10. Málstofur hefjast kl. 10.30 og standa til kl. 12. Boðið verður upp á létta hádegishressingu og netagerð að lokinni dagskrá. Hægt er að skrá sig á sameiginlega hlutann eingöngu sem lýkur kl. 10.
DAGSKRÁ
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Sigsteinn Grétarsson, Arctic Green Energy
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs og um langa hríð yfirmaður hjá loftslagssamningi S.þ.
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ
UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS 2018
Ragna Sara Jónsdóttir, formaður dómnenfndar og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Málstofa um alþjóðaviðskipti og loftslagsmál kl. 10.30-12
Loftslagsvænt sérmerkt ál
Guðrún Þóra Magnúsdóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Rio Tinto á Íslandi
Árangur sjávarútvegsins í loftslagsmálum
Hildur Hauksdóttir, verkefnastjóri hjá HB Grandi
Loftslagsvæn sjálfbær ferðaþjónusta
Nafn fyrirlesara staðfest síðar.
Ábyrgar fjárfestingar
Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum.
Kolefnishlutlaus orku- og veitustarfsemi 2030
Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður auðlinda, Orku náttúrunnar
Málstofustjóri er Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Málstofa um grænar lausnir atvinnulífsins kl. 10.30-12
Framtíð sorpförgunar
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og stofnandi Environice
Vistvæn mannvirki
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænnar byggðar
Kolefnisfótspor fyrirtækja
Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri Odda
Er plastið á leið úr búðunum?
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur SVÞ
Endurnýjanlegt eldsneyti og sjálfbærar samgöngur
Margrét Ormslev, fjármálastjóri CRI
Málstofustjóri er Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakandi.
Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA hér.