Fréttatilkynning send á fjölmiðla 24.5.2017
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu ásamt Rauða krossinum á Íslandi standa fyrir örnámskeiði fyrir flóttafólk á Íslandi um störf í íslenskri verslun og við þjónustustörf.
,,Atvinnulífið vill leggja sitt af mörkum til þess að hvetja þennan hóp til þátttöku í íslensku atvinnulífi. Hæsta hlutfall á íslenskum vinnumarkaði vinnur við verslun og þjónustustörf sem jafnframt er oft fyrsti viðkomustaður fólks sem er taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu.
Samstarfið hófst í morgun, miðvikudaginn 24. maí, með örnámskeiði þar sem farið var yfir ferlið frá uppbyggingu ferilsskrár og þar til hafin eru störf á vinnustað. Hvernig getur þessi hópur sótt um vinnu á Íslandi, hvaða tækifæri eru í boði, hvernig er íslensk vinnustaðamenning og hvernig gengur þessum hópi almennt. Mannauðsstjóri og ráðgjafi frá Festi og Hagvangi verða með erindi á námskeiðinu auk þess sem fulltrúar SVÞ og Rauða krossins koma með innlegg. Í undirbúningi eru heimsóknir til fyrirtækja og t.a.m. hefur Eimskip boðist til að bjóða í heimsókn og kynna vinnustaðinn og fara yfir praktísk atriði.
,,Við fögnum þessu framtaki enda mjög mikilvægt að við hlúum vel að þessum hópi og hjálpum þeim að komast inn í íslenskt samfélag og þar gegnir þátttaka á vinnumakaði mikilvægu hlutverki. Það er mikilvægt að læra líka um hluti eins og vinnustaðamenningu sem skiptir afar miklu máli en getur verið erfitt að átta sig á þegar maður er nýkominn til nýs lands með annarri menningu“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins.
,,Að óbreyttu er líklegra að skortur verði á vinnuafli á Íslandi og að sama skapi tekur tíma að þjálfa og mennta nýtt starfsfólk, ekki síst til að hæfileikar og menntun hvers og eins nýtist. Að auki fáum við nýja þekkingu og fjölbreyttari reynslu inn í landið.“ segir Andrés að lokum.
Samtök verslunar og þjónustu ætla sér að vera leiðandi við innleiðingu stafrænnar tækniþróunar hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu. SVÞ mun aðstoða aðildarfyrirtæki við að takast á við þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir vegna framþróunar stafrænnar tækni og skoða hvaða sóknarfæri er að finna. Með tilliti til þessa stendur SVÞ fyrir vinnustofu fyrir félagsmenn um „Nýjustu tæknimöguleikana í markaðssetningu á netinu“.
Magnús Sigurbjörnsson mun stjórna vinnustofunni en hann hefur nýlega stofnað fyrirtækið Papaya sem býður upp á sérhæfðar lausnir á samfélagsmiðlum.
Þeir þættir sem helst verða teknir til umfjöllunar eru:
– Kynning á auglýsingamöguleikum Facebook & Instagram
– Kynning og tilgangur Facebook Pixel
– Hvernig náum við betur til okkar markhóps?
– Betri stefnumótun á samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki í netverslun
– Remarketing auglýsingaherferðir á samfélagsmiðlum
– Á hvaða samfélagsmiðlum eru tækifæri?
– Verður Facebook Messenger enn mikilvægara tól fyrir þjónustufyrirtæki?
– Nýjasta tækni á samfélagsmiðlum
– Kafað enn dýpra í sérhæfða auglýsingamöguleika á samfélagsmiðlum
Stjórn vinnustofu: Magnús Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Papaya Staður og stund: Kvika, Borgartúni 35, mánudaginn 29. maí kl. 08:30 – 11:30
Á ráðstefnu SVÞ þann 23. mars sl. sem haldin var í tengslum við ársfund samtakanna fjallaði Anna Felländer, ráðgjafi og hagfræðingur, í sinni framsögu um áhrif stafrænu byltingarinnar á verslun og þjónustu og þær breytingar sem eru framundan í þeim efnum. Breytt neysluhegðun aldamótakynslóðarinnar felur í sér ögrandi verkefni fyrir alla sem starfa við verslun og þjónustu í dag. Þróunin er hröð og á sér stað um allan heim og því var afar fróðlegt að heyra í einum helsta sérfræðingi nútímans á þessu sviði miðla af reynslu sinni og þekkingu.
Á ráðstefnunni kynnti Daníel Svavarsson forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans niðurstöður nýrrar greiningar á stöðu, þróun og horfum í íslenskri verslun. Á sama tíma var gefið út glæsilegt veftímarit um íslenska verslun.
Auk þess sem formaður SVÞ, Margrét Sanders, og ráðherra ferðamála, iðnaðar, og nýsköpunar, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir héldu tölu á ráðstefnunni sem fór fram undir styrkri stjórn Guðmundu Óskar Kristjánsdóttur viðskiptastjóra verslunar og þjónustu hjá Landsbankanum.
Í framhaldi af ársfundi SVÞ þann 23. mars sl. þar sem fjallað var um byltingu og breytingu í þjónustu og verslun stóð SVÞ fyrir vinnustofu í samvinnu við Eddu Blumenstein, doktorsnema við Viðskiptaháskólann í Leeds á Englandi. Á vinnustofunni var farið yfir næstu skref hvað varðar innleiðingu stafrænnar tækni í verslun. Fór Edda m.a. yfir hvernig kauphegðun notenda hefur breyst með tilkomu stafrænnar tækni, netsins, samfélagsmiðla og fleira, og í raun hvernig smásalar, verslunar- og þjónustuaðilar eru að bregðast við þeirri þróun.
Fjallað var um hvernig við höfum þróast frá „single channel“ fyrirkomulagi þar sem kaupmaðurinn á horninu veitti persónulega þjónustu til viðskiptavina, út í það að vera með margar aðkomuleiðir að viðskiptavininum. Í því samhengi var sérstaklega farið yfir Omni Channel, eða samruna stafrænnar tækni og hefðundinnar verslunar.
Til að skýra Omni Channel hugmyndafræðina nefndi Edda verslunina Mothercare í Bretlandi, en sú verslun er mjög gott dæmi, að hennar sögn, um leiðandi Omni Channel fyrirtæki. Þ.e., verslunin er með allt samtengt, tækni og verslun. Starfsfólkið er til dæmis með spjaldtölvur og aðstoðar þig á alla lund. Það eina sem þarf að gera við þjónustuborðið er að borga.
Haldinn í samvinnu Umhverfisstofnunar, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Félags atvinnurekenda
Staður og tími: Borgartúni 35, 5. apríl 2017, kl. 10:00-12:00
Dagskrá:
10.00-10.05 Opnun
10:05-10:15 Efnalögin og eftirlit með efnavörum – Björn Gunnlaugsson
10:15-10:25 Öryggisblöð – flæði upplýsinga í aðfangakeðjunni – Björn Gunnlaugsson
10:25-10:45 Flokkun og merking á efnavörum, ábyrgð fyrirtækja og eftirlit – Einar Oddsson
10:45-11:00 Hlé
11:00-11:20 Flokkun og merking á efnavörum, ábyrgð fyrirtækja og eftirlit frh. – Einar Oddsson
11:20-11:30 Þvingunarúrræði og viðurlög – Maríanna Said
11.30-12:00 Umræður
Hin hraða tækniþróun undanfarinna ára, með tilkomu netsins, snjallsíma og samfélagsmiðla hefur gjörbreytt kauphegðun viðskiptavina af aldamótakynslóðinni og þar með aukið samkeppni við hefðbundin verslunar- og þjónustufyrirtæki til muna.
Til þess að aðstoða fyrirtæki við að bregðast við þessari stöðu stendur SVÞ fyrir vinnustofu fyrir félagsmenn þar sem farið verður yfir hvernig kauphegðun viðskiptavina hefur breyst og hvernig hefðbundin verslun og stafræn verslun hafa runnið saman í eitt (s.k. „Omni Channel“ þjónusta).
Kynnt verða tól og tæki til að takast á við áskoranir og nýta tækifæri sem felast í innleiðingu „Omni Channel“ þjónustunnar. Sjá má stutta samantekt á https://eddablumenstein.com/
Stjórn vinnustofu: Edda Blumenstein, sem vinnur að doktorsrannsóknum í Omni Channel Retail Strategy við viðskiptaháskólann í Leeds.
Staður og stund: Kvika, Borgartúni 35, kl. 13:00 – 16:00 mánudaginn 3. apríl 2017