15/06/2026 | Samtök sjálfstæðra skóla, Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SSK leggja áherslu á skýr markmið fremur en breytingu á einkunnakerfi
SSK – Sjálfstæðir skólar hafa skilað umsögn um fyrirhugaðar breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla þar sem lagt er til að námsmat verði sett fram með tölueinkunnum í stað bókstafa. Samtökin leggja áherslu á að námsmat eigi fyrst og fremst að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar og gagnlegar upplýsingar um nám, framfarir og hæfni.
Í umsögninni benda SSK á að tölueinkunnir geti verið aðgengilegar og auðveldað samanburð, en að þær einar og sér gefi ekki fullnægjandi mynd af fjölbreyttri hæfni nemenda. Þættir á borð við rökhugsun, skilning, samvinnu, frumkvæði og skapandi hugsun krefjist áfram lýsandi námsmats og faglegs mats kennara.
Samtökin leggja áherslu á að ef aukin notkun tölueinkunna verður tekin upp þurfi að skilgreina með skýrum hætti hvaða hæfni, þekking og færni liggur að baki hverri einkunn. Án slíkra skilgreininga sé hætta á að námsmatið verði óskýrt og upplýsingagildi þess takmarkað.
SSK benda jafnframt á að skólar hafi á undanförnum árum lagt verulega vinnu í að þróa námsmat út frá hæfniviðmiðum og innleiða núverandi kerfi. Því sé mikilvægt að breytingar séu vel undirbyggðar og sýnt fram á hvernig þær bæta upplýsingagjöf og styðja betur við nám nemenda.
Að mati samtakanna er stærsta áskorunin ekki hvort notaðir séu bókstafir eða tölur, heldur að hæfniviðmið og námsmarkmið séu skýr, afmörkuð og mælanleg. Slík vinna sé lykillinn að gagnlegra og samræmdara námsmati.
Smelltu –> Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla
15/06/2026 | Bílgreinasambandið, Fréttir, Í fjölmiðlum, Stjórnvöld, Úr hagsmunagæslunni
Evrópskt regluverk hefur um árabil gert ráð fyrir undanþágu vegna aukinnar þyngdar rafhlaðna í rafknúnum ökutækjum. Sú aðlögun hefur hins vegar ekki enn skilað sér að fullu í íslenskt regluverk. SVÞ og Bílgreinasambandið hafa ítrekað bent á að þessi tregða hamli orkuskiptum og geri fyrirtækjum erfiðara fyrir að fjárfesta í rafknúnum atvinnubílum.
Í umfjöllun Morgunblaðsins 13. júní sl., kemur fram að Innviðaráðuneytið hafi um langt skeið haft málið til skoðunar án þess að breytingar hafi tekið gildi.
Evrópa hefur þegar brugðist við vandanum
Árið 2018 voru samþykktar breytingar á evrópskum reglum sem gera aðildarríkjum kleift að leyfa ökumönnum með B-ökuréttindi að aka rafknúnum ökutækjum og öðrum ökutækjum sem nota aðra orkugjafa, allt að 4.250 kg heildarþyngd. Tilgangurinn var að tryggja að aukin þyngd rafhlaðna yrði ekki hindrun í vegi orkuskipta.
Þessi heimild hefur verið tekin upp í fjölmörgum Evrópuríkjum. Á Íslandi gilda hins vegar enn eldri þyngdarmörk, sem þýðir að fyrirtæki geta þurft að afla starfsfólki aukinna ökuréttinda til að aka rafknúnum sendibílum sem gegna í reynd sama hlutverki og sambærilegir dísilbílar.
Óþarfa hindrun fyrir fyrirtæki
SVÞ hefur bent á að um sé að ræða regluverkshindrun fremur en öryggismál. Burðargeta og notkun ökutækjanna breytast ekki, heldur vegur rafbúnaðurinn meira en hefðbundinn aflrásarbúnaður.
Afleiðingin er aukinn kostnaður, meira flækjustig í rekstri og minni hvati til að endurnýja bílaflota með umhverfisvænni lausnum. Þetta hefur sérstaklega áhrif á fyrirtæki í verslun, þjónustu, flutningum og dreifingu sem treysta á létta atvinnubíla í daglegum rekstri.
Kallað eftir skýrum svörum
SVÞ telur mikilvægt að íslenskt regluverk fylgi þeirri þróun sem þegar hefur átt sér stað víða í Evrópu. Með því yrði dregið úr óþarfa hindrunum, fyrirtækjum auðveldað að ráðast í orkuskipti og stutt betur við loftslagsmarkmið stjórnvalda.
UPPFÆRSLA 23/06/26 – Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskirteini nr. 830/2011
og frétt hjá Stjórnarráðinu HÉR!
______________________________

10/06/2026 | Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SVÞ vara við kostnaðarhækkunum vegna EUDR-reglugerðarinnar
SVÞ hafa skilað umsögn til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um fyrirhugaða upptöku EUDR-reglugerðar Evrópusambandsins í EES-samninginn. Reglugerðin miðar að því að draga úr eyðingu skóga með auknum kröfum um rekjanleika tiltekinna vara og hráefna sem flutt eru inn á Evrópumarkað.
Í umsögninni kynna SVÞ niðurstöður greiningar á innflutningi vara sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Greiningin bendir til þess að reglugerðin geti haft veruleg áhrif á íslensk fyrirtæki sem reiða sig á innflutning frá löndum utan EES, meðal annars vegna aukinnar stjórnsýslu og breyttra innkaupaleiða.
SVÞ benda á að fyrirtæki kunni í auknum mæli að færa viðskipti sín til birgja innan EES til að draga úr áhættu og umsýslu. Slík tilfærsla gæti þó leitt til hærri innkaupakostnaðar og takmarkaðra vöruframboðs. Greining samtakanna bendir til þess að árlegur viðbótarkostnaður íslenskra innflytjenda gæti numið allt að þremur milljörðum króna ef innflutningur færist í stórum stíl frá ríkjum utan EES yfir til EES-ríkja.
Sérstaklega er fjallað um áhrif reglugerðarinnar á kaffimarkaðinn, þar sem íslensk fyrirtæki hafa um árabil byggt upp viðskiptasambönd við framleiðendur í Suður-Ameríku og Afríku. SVÞ telja að nýjar upplýsingakröfur geti gert slík viðskipti flóknari og kostnaðarsamari, með mögulegum áhrifum á verð og framboð til neytenda.
SVÞ leggja áherslu á að við innleiðingu nýs regluverks verði metin áhrif þess á íslenskt atvinnulíf og neytendur, þannig að markmið um sjálfbærni náist án þess að óþarfa kostnaður og flækjustig leggist á fyrirtæki og heimili.
Smelltu –> Umsögn SVÞ til URN EUDR í EES
09/06/2026 | Fréttir, Stjórnvöld, Úr hagsmunagæslunni
Þingsályktunartillaga um einföldun regluverks og afnám svokallaðrar gullhúðunar markar mikilvægan áfanga í umræðu um samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Tillagan, sem lögð var fram á Alþingi 5. júní 2026, felur í sér að ráðherra verði falið að leggja fram frumvarp um afnám gullhúðunar og fara yfir gildandi regluverk með það að markmiði að draga úr óþarfa íþyngjandi reglum.
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa lengi bent á að íslensk stjórnvöld hafi í sumum tilvikum gengið lengra við innleiðingu EES-reglna en nauðsynlegt er. Slík gullhúðun getur aukið kostnað fyrirtækja, flækt rekstur og dregið úr samkeppnishæfni þeirra gagnvart fyrirtækjum í öðrum EES-ríkjum.
Reglur um peningaþvætti hafa verið í brennidepli
Þann 28. maí birtu SVÞ, Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda sameiginlega grein þar sem bent var á að við innleiðingu reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti hefði Alþingi í ákveðnum atriðum gengið lengra en lágmarkskröfur Evrópureglna kveða á um. Þar var meðal annars bent á að fyrirtæki í bíla-, raftækja- og smásölugeiranum hefðu þurft að taka upp umfangsmikið eftirlit, framkvæma ítarlegar áreiðanleikakannanir og sæta verulegri sektaráhættu.
Í greininni var jafnframt bent á að kostnaður vegna þessa regluverks gæti numið hundruðum milljóna króna árlega og að fyrirtæki hefðu þegar fengið boðaðar sektir sem nema tugum milljóna króna.
Gullhúðun eykur kostnað fyrirtækja, flækir rekstur og dregur úr samkeppnishæfni þeirra.
Fyrir fyrirtæki snýst málið ekki um að draga úr kröfum um neytendavernd, eftirlit eða varnir gegn peningaþvætti. Málið snýst um að reglur séu markvissar, skýrar og í samræmi við þær skuldbindingar sem Ísland hefur tekið á sig.
Einfaldara regluverk getur dregið úr kostnaði, minnkað óþarfa stjórnsýslubyrði og styrkt samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Þess vegna fagnar SVÞ því að málið sé nú komið á dagskrá Alþingis.

29/05/2026 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Netverslun-innri, Stjórnvöld, Verslun
Evrópusambandið hefur lagt 30 milljarða króna sekt, jafnvirði 200 milljóna evra, á netverslunarrisann TEMU vegna annmarka á eftirliti með vörum sem seldar eru í gegnum markaðstorg fyrirtækisins. Framkvæmdastjórn ESB telur fyrirtækið ekki hafa gripið til fullnægjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir sölu hættulegra og ólöglegra vara til evrópskra neytenda.
Hættulegar vörur fundust í sölu
Samkvæmt framkvæmdastjórn ESB leiddi rannsókn í ljós að neytendur innan Evrópusambandsins væru í verulegri hættu á að rekast á vörur sem uppfylla ekki evrópskar öryggiskröfur þegar þeir versla á TEMU. Þar er meðal annars vísað til niðurstaðna úr prófunum og leynikaupum sem sýndu að hættulegar vörur voru aðgengilegar í gegnum vettvanginn.
Málið fellur undir reglur Evrópusambandsins um stafræna þjónustu, Digital Services Act (DSA), sem kveða á um sérstakar skyldur stórra netvettvanga til að greina og draga úr áhættu sem getur skapast fyrir neytendur.
Neytendur geta keypt hættulegar vörur án vitneskju
Málið hefur einnig vakið athygli hér á landi. Í umfjöllun RÚV um efnið kom fram að rannsóknir hafi sýnt að neytendur geti keypt vörur af erlendum netmarkaðstorgum án þess að gera sér grein fyrir því að þær innihaldi hættuleg eða bönnuð efni. Þar var jafnframt bent á að vörur sem ekki standast evrópskar kröfur geti ratað til neytenda í gegnum alþjóðlega netverslun, þrátt fyrir það eftirlit sem viðhaft er innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Vaxandi áskorun fyrir eftirlit með netverslun
Málið dregur fram þær áskoranir sem stjórnvöld og eftirlitsaðilar standa frammi fyrir þegar kemur að eftirliti með vörum sem seldar eru beint til neytenda í gegnum alþjóðleg netmarkaðstorg. Framkvæmdastjórn ESB segir að markmið aðgerðanna sé að tryggja að netvettvangar axli ábyrgð á því að hættulegar og ólöglegar vörur séu ekki aðgengilegar neytendum í Evrópu.
TEMU þarf að svara fyrir 28. ágúst nk.
TEMU fær nú tækifæri til að svara niðurstöðum rannsóknarinnar áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Framkvæmdastjórn ESB segir jafnframt að fyrirtækið kunni að þurfa að grípa til frekari aðgerða til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt DSA-regluverkinu
Sjá frétt frá EU -> HÉR!
Sjá frétt frá RÚV -> HÉR!
27/05/2026 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Stjórnvöld, Verslun, Þjónusta
Skoðanagrein á VISI 27. maí 2026 – sjá HÉR!
SVÞ, Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda kalla eftir einföldun regluverks og samtali við stjórnvöld um breytingar. Samtökin gagnrýna að Ísland hafi gengið lengra en önnur ríki við innleiðingu reglna gegn peningaþvætti og segja svokallaða gullhúðun hafa leitt til kostnaðarsams eftirlits, yfirheyrslna viðskiptavina og aukinnar sektaráhættu fyrir fyrirtæki í bíla-, raftækja- og smásölugeiranum.
__________
Grái listinn
Eins og margir muna var Ísland sett á gráan lista FATF-aðgerðarhóps gegn peningaþvætti árið 2018. Við svo búið gripu stjórnvöld til ýmissa úrræða í því skyni að ná Íslandi af listanum enda gátu áhrif af verunni þar haft neikvæð efnahagsleg áhrif. Innleidd var ESB-tilskipun um viðfangsefnið og eftirlit sett í hendur Skattsins og Seðlabanka Íslands. Markmið tilskipunarinnar var mikilvægt, að vernda fjármálakerfið gegn misnotkun í þágu peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
Það er óhætt að halda því fram að fáir ef nokkrir leggist gegn því að fjármálakerfið og þjóðfélagið njóti verndar gegn glæpastarfsemi. Atvinnulífið styður slíka viðleitni heilshugar.
Aðkoma Alþingis
Þáverandi ríkisstjórn lagði sitt af mörkum til að treysta regluverk og eftirlit hér á landi. Alþingi gegndi einnig lykilhlutverki því hér þurfti að breyta lögum svo Ísland kæmist af gráa listanum. Margir, þ. á m. atvinnulífið, sýndu viðbrögðunum ríkan skilning.
En þegar hratt er unnið verða stundum mistök. Þegar Alþingi fékkst við lagabreytingar læddust með óþörf og íþyngjandi atriði. Þannig var því komið til leiðar að bifreiðasalar og bifreiðaumboð þyrftu að ráðast í djúpa rannsókn á kaupendum bifreiða og skrá í kerfi ítarlegar upplýsingar um hverjir viðskiptavinirnir væru og hvernig þeir hefðu eignast peninga til kaupanna. Þetta er þó ekki gert í öðrum ríkjum. Standi söluaðilarnir ekki rétt að rannsókninni eru þeir sektaðir eins og glæpamenn væru. Boðaðar sektir hafa numið hátt í 84 milljónum króna hingað til. Til að standast settar kröfur þurfa söluaðilarnir að byggja upp verklag og kaupa aðgang að dýrum kerfum og þjálfa og endurþjálfa starfsfólk til að yfirheyra viðskiptavini með réttum hætti. Líkur eru á að kostnaðurinn nemi hátt í hálfum milljarði króna á ári hverju og hann ratar út í verðlag.
Alþingi virðist hafa komist á bragðið, því að í viðleitni til að taka á smálánafyrirtækjum nokkru seinna var sleggju beitt. Þeim var gert að sinna sambærilegu eftirliti og bílgreininni gagnvart sínum viðskiptavinum. Vandinn er sá að útfærslan er svo víðtæk að nú þurfa kaupendur raftækja, landbúnaðarvéla o.fl. einnig að sæta yfirheyrslu af hálfu sölufólks sem skráir allt í kerfin. Ekki þarf að fjölyrða um þann kostnað og fyrirhöfn sem fylgir fyrir fyrirtækin og viðskiptavini þeirra.
Vinna gegn gullhúðun efst á blaði
Þegar ríkisstjórnin var mynduð var gerður samningur sem er kallaður stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar. Eitt markmiða samningsins er að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri en þar er tekið fram að meðal lykilaðgerða ríkisstjórnarinnar verði að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Eins og margir þekkja var eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar að ganga til samráðs við þjóðina og kalla eftir tillögum um einföldun og hagræðingu. Starfshópur forsætisráðherra skilaði fjölda tillagna sem voru m.a. unnar upp úr hugmyndum þjóðarinnar og ríkisaðila. Meðal þeirra eru tillögur um umbætur á regluverki og þar er vinna gegn gullhúðun efst á blaði.
Hvað gerist þegar blaðinu sleppir
Ríkisstjórnin hefur horft í ýmsar áttir í viðleitni til einföldunar og hagræðingar, t.d. að sameina stofnanir, samhæfa eftirlit, gera breytingar á jafnlaunavottun, draga úr gullhúðun sem finna má í lögum um ársreikninga og er það vel.
Næg eru verkefnin og á því má hafa skilning. Hins vegar er erfitt að skilja hvers vegna jafn einföld aðgerð og að afmá fyrri verk Alþingis, sem leitt hafa til óþarfa yfirheyrslna borgaranna og uppsöfnunar kostnaðar í sölustarfsemi – og er í þokkabót í ósamræmi við kröfur og framkvæmd í öðrum ríkjum – fái engan hljómgrunn. Verður þá að hafa í huga að fastanefnd Alþingis lét með skýrum hætti í ljós að endurskoðun á löggjöfinni væri sérstaklega mikilvæg.
Samtalið þarf að eiga
Bílgreinasambandið, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu óskuðu eftir samtali við dómsmálaráðherra í byrjun þessa árs með það fyrir augum að ræða þessa stöðu. Það er synd að enn hafi ráðherra ekki séð sér fært að taka þátt í því samtali.
Höfundar:
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda