26/06/2026 | Bílgreinasambandið, Fréttir, Í fjölmiðlum
Það er sannarlega tilefni til að gleðjast þegar fólk úr röðum aðildarfyrirtækja SVÞ og BGS fær viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf.
Á lista Góðra samskipta yfir 20 Vonarstjörnur 2026 undir 40 ára aldri eru nokkrir fulltrúar okkar sem hafa vakið athygli fyrir metnað, árangur og leiðtogahæfni í íslensku atvinnulífi.
Meðal þeirra sem tengjast aðildarfyrirtækjum SVÞ og BGS eru:
- Jónas Kári Eiríksson (32), framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Inchcape og stjórnarmaður í SVÞ og BGS
- Sverrir Bartolozzi (29), forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Festi
- Katrín Aagestad Gunnarsdóttir (35), markaðsstjóri Nettó
- Tryggvi Már Magnússon (30), fjármálastjóri Eimskips fyrir Bandaríkjamarkað
- Pétur Melax (28), sölustjóri Bónus
Þessi viðurkenning er til marks um öflugt fólk sem skapar verðmæti, leiðir breytingar og hefur jákvæð áhrif á fyrirtækin sín og íslenskt atvinnulíf.
Við erum sérstaklega stolt af því að Jónas Kári Eiríksson, stjórnarmaður í SVÞ og BGS, sé í þessum glæsilega hópi en hann hefur með kraftmiklum hætti lagt sig fram við að gæta hagsmunafyrirtækja SVÞ og bílgreinarinnar.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með viðurkenninguna. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi vegferð þeirra og þeim árangri sem án efa á eftir að fylgja.
____
Mynd frá Medium.
22/06/2026 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Samtök sjálfstæðra skóla
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu óska Jensínu Eddu Hermannsdóttur, leikskólastýru Laufásborgar, innilega til hamingju með að hafa verið valin Reykvíkingur ársins 2026. Jensína hefur um árabil verið leiðandi afl í íslensku leikskólastarfi og hlotið verðskuldaða viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag sitt til menntunar og velferðar barna.
Útnefningin kemur í kjölfar mikillar athygli sem starfsemi Laufásborgar hefur vakið. Í umfjöllun Vísis fyrr á árinu var leikskólanum lýst sem einum eftirsóttasta leikskóla landsins, þar sem bæði foreldrar og starfsfólk kunna vel að meta starfshættina og menninguna sem byggð hefur verið upp undir stjórn Jensínu.
SVÞ fagnar sérstaklega því að Jensína Edda er hluti af samfélagi sjálfstæðra skóla á Íslandi. Sjálfstæðir skólar gegna mikilvægu hlutverki í íslensku menntakerfi með því að auka fjölbreytni, efla valfrelsi fjölskyldna og stuðla að nýsköpun og þróun í skólastarfi.
Viðurkenningin er jafnframt áminning um það mikilvæga starf sem unnið er daglega í leikskólum landsins og þau áhrif sem öflugt skólastarf hefur á börn, fjölskyldur og samfélagið í heild.
SVÞ óskar Jensínu Eddu og starfsfólki Laufásborgar innilega til hamingju með þennan verðskuldaða heiður.
*Mynd frá Visir.is
15/06/2026 | Samtök sjálfstæðra skóla, Stjórnvöld, Umsagnir, Úr hagsmunagæslunni
SSK leggja áherslu á skýr markmið fremur en breytingu á einkunnakerfi
SSK – Sjálfstæðir skólar hafa skilað umsögn um fyrirhugaðar breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla þar sem lagt er til að námsmat verði sett fram með tölueinkunnum í stað bókstafa. Samtökin leggja áherslu á að námsmat eigi fyrst og fremst að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar og gagnlegar upplýsingar um nám, framfarir og hæfni.
Í umsögninni benda SSK á að tölueinkunnir geti verið aðgengilegar og auðveldað samanburð, en að þær einar og sér gefi ekki fullnægjandi mynd af fjölbreyttri hæfni nemenda. Þættir á borð við rökhugsun, skilning, samvinnu, frumkvæði og skapandi hugsun krefjist áfram lýsandi námsmats og faglegs mats kennara.
Samtökin leggja áherslu á að ef aukin notkun tölueinkunna verður tekin upp þurfi að skilgreina með skýrum hætti hvaða hæfni, þekking og færni liggur að baki hverri einkunn. Án slíkra skilgreininga sé hætta á að námsmatið verði óskýrt og upplýsingagildi þess takmarkað.
SSK benda jafnframt á að skólar hafi á undanförnum árum lagt verulega vinnu í að þróa námsmat út frá hæfniviðmiðum og innleiða núverandi kerfi. Því sé mikilvægt að breytingar séu vel undirbyggðar og sýnt fram á hvernig þær bæta upplýsingagjöf og styðja betur við nám nemenda.
Að mati samtakanna er stærsta áskorunin ekki hvort notaðir séu bókstafir eða tölur, heldur að hæfniviðmið og námsmarkmið séu skýr, afmörkuð og mælanleg. Slík vinna sé lykillinn að gagnlegra og samræmdara námsmati.
Smelltu –> Áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla
15/06/2026 | Bílgreinasambandið, Fréttir, Í fjölmiðlum, Stjórnvöld, Úr hagsmunagæslunni
Evrópskt regluverk hefur um árabil gert ráð fyrir undanþágu vegna aukinnar þyngdar rafhlaðna í rafknúnum ökutækjum. Sú aðlögun hefur hins vegar ekki enn skilað sér að fullu í íslenskt regluverk. SVÞ og Bílgreinasambandið hafa ítrekað bent á að þessi tregða hamli orkuskiptum og geri fyrirtækjum erfiðara fyrir að fjárfesta í rafknúnum atvinnubílum.
Í umfjöllun Morgunblaðsins 13. júní sl., kemur fram að Innviðaráðuneytið hafi um langt skeið haft málið til skoðunar án þess að breytingar hafi tekið gildi.
Evrópa hefur þegar brugðist við vandanum
Árið 2018 voru samþykktar breytingar á evrópskum reglum sem gera aðildarríkjum kleift að leyfa ökumönnum með B-ökuréttindi að aka rafknúnum ökutækjum og öðrum ökutækjum sem nota aðra orkugjafa, allt að 4.250 kg heildarþyngd. Tilgangurinn var að tryggja að aukin þyngd rafhlaðna yrði ekki hindrun í vegi orkuskipta.
Þessi heimild hefur verið tekin upp í fjölmörgum Evrópuríkjum. Á Íslandi gilda hins vegar enn eldri þyngdarmörk, sem þýðir að fyrirtæki geta þurft að afla starfsfólki aukinna ökuréttinda til að aka rafknúnum sendibílum sem gegna í reynd sama hlutverki og sambærilegir dísilbílar.
Óþarfa hindrun fyrir fyrirtæki
SVÞ hefur bent á að um sé að ræða regluverkshindrun fremur en öryggismál. Burðargeta og notkun ökutækjanna breytast ekki, heldur vegur rafbúnaðurinn meira en hefðbundinn aflrásarbúnaður.
Afleiðingin er aukinn kostnaður, meira flækjustig í rekstri og minni hvati til að endurnýja bílaflota með umhverfisvænni lausnum. Þetta hefur sérstaklega áhrif á fyrirtæki í verslun, þjónustu, flutningum og dreifingu sem treysta á létta atvinnubíla í daglegum rekstri.
Kallað eftir skýrum svörum
SVÞ telur mikilvægt að íslenskt regluverk fylgi þeirri þróun sem þegar hefur átt sér stað víða í Evrópu. Með því yrði dregið úr óþarfa hindrunum, fyrirtækjum auðveldað að ráðast í orkuskipti og stutt betur við loftslagsmarkmið stjórnvalda.
UPPFÆRSLA 23/06/26 – Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskirteini nr. 830/2011
og frétt hjá Stjórnarráðinu HÉR!
______________________________

22/05/2026 | Fréttir, Samtök sjálfstæðra skóla, Stjórnvöld
Ný skýrsla mennta- og barnamálaráðherra um frammistöðu nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskólum vekur athygli á þeim góða árangri sem nemendur úr sjálfstætt reknum skólum ná. Niðurstöðurnar sýna að margir sjálfstæðir skólar standa afar vel þegar kemur að undirbúningi nemenda fyrir áframhaldandi nám og skila stöðugt góðum námsárangri.
Staðfesting á mikilvægi fjölbreytni í íslensku menntakerfi.
Þetta er mikilvæg staðfesting á því að fjölbreytni í íslensku menntakerfi skiptir máli. Sjálfstæðir skólar hafa skapað öflugt námsumhverfi þar sem metnaður, fagmennska og velferð nemenda eru í fyrirrúmi. Þar hefur verið lögð áhersla á skýra sýn, náið samstarf við fjölskyldur og kennslu sem tekur mið af styrkleikum hvers og eins nemanda. Allir sjálfstæðu skólarnir eru litlir og taka vel utan um nemendahópa sína og þar hafa nemendur sem ekki hafa fundið sig í stærri skólum náð að blómstra.
Afrakstur markvissrar vinnu kennara, stjórnenda og skólasamfélagsins alls.
Árangurinn er ekki sjálfgefinn heldur afrakstur markvissrar vinnu kennara, stjórnenda og skólasamfélagsins alls. Hann sýnir jafnframt að valfrelsi foreldra og nemenda getur stuðlað að framþróun og auknum gæðum í öllu menntakerfinu.
Skýrslan er því mikilvægt innlegg í umræðuna um framtíð skólamála á Íslandi og undirstrikar að sjálfstæðir skólar eru öflugur og mikilvægur hluti af íslensku menntakerfi.
Skýrsluna má lesa hér: https://www.althingi.is/altext/pdf/157/s/1182.pdf
21/05/2026 | Bílgreinasambandið, Fréttir, Í fjölmiðlum, Stjórnvöld
Íslensk „gullhúðun“ á reglum um varnir gegn peningaþvætti hefur skapað verulegt óhagræði fyrir bæði fyrirtæki og almenning. Bílasalar og önnur fyrirtæki hafa í reynd verið gerð að eftirlitsaðilum með umfangsmiklum kröfum um gagnaöflun, skráningar og innra eftirlit sem kosta greinina hundruð milljóna króna á ári og skila sér að lokum í hærra verði til neytenda.
Morgunblaðið fjallar um íþyngjandi peningaþvættisreglur gagnvart bílakaupendum
Morgunblaðið fjallar í dag 21. maí 2026, um hvernig íslensk innleiðing peningaþvættisreglna hefur leitt til aukins eftirlits, meiri kostnaðar og umtalsverðs ónæðis fyrir bæði fyrirtæki og almenning. Þar er m.a. vitnað í Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins og SVÞ, að Ísland hafi gengið lengra en þau ríki sem við berum okkur helst saman við.
„Okkar rannsókn hefur leitt það í ljós að sú tilkynningarskylda sem hvílir á bifreiðaumboðum, bílasölum og lánamiðlurum kemur fram í því að þess er krafist af almenningi þegar hann kaupir bíla eða einhverja muni að viðkomandi framvísi upplýsingum um hver hann sé og hvaðan peningarnir sem ætlaðir eru til kaupanna komi.“ segir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ og Bílgreinasambandsins í viðtali við Morgunblaðið.
Í frétt blaðsins kemur fram að almenningur hafi í sumum tilvikum þurft að leggja fram skattframtöl, launaseðla eða aðrar upplýsingar við kaup á bifreiðum og verðmætari vörum. Benedikt segir þessar kröfur vera dæmi um íslenska „gullhúðun“ á Evrópureglum og leiðbeiningum FATF, aðgerðahóps gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Bílasalar gegna hlutverki eftirlitsaðila
Að mati Bílgreinasambandsins eru sambærilegar kröfur ekki gerðar í þeim ríkjum sem Ísland ber sig saman við. Hér á landi hafi hins vegar verið lagðar umfangsmiklar skyldur á bílasala, bifreiðaumboð og aðra söluaðila um að afla upplýsinga frá viðskiptavinum, meta svör þeirra og halda utan um ítarlega skráningu.
Í frétt Morgunblaðsins kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi meðal annars viljað bregðast við því að aðilar í bílgreininni gerðu sér ekki alltaf grein fyrir því að móttaka reiðufjár gæti kallað á eftirlitsskyldu. Þá hafi einnig verið horft til starfsemi smálánafyrirtækja.
Hundruð milljóna í eftirlit og umsýslu sem endar í verði til neytenda.
Afleiðingarnar hafa þó orðið víðtækari en upphaflega var lagt upp með. Samkvæmt mati Bílgreinasambandsins nemur árlegur kostnaður bílgreinarinnar vegna þessa regluverks 250 til 450 milljónum króna. Sá kostnaður felur meðal annars í sér rekstur eftirlitskerfa, þjálfun starfsfólks, skráningu upplýsinga og innra eftirlit.
Sá kostnaður endar að lokum í verði til neytenda.
Á sama tíma verður almenningur fyrir verulegu ónæði við hefðbundin viðskipti. Fólk sem er að kaupa bifreið eða aðrar verðmætari vörur þarf að svara ítarlegum spurningum um fjármál sín og framvísa gögnum sem almennt er ekki krafist erlendis við sambærileg kaup.
Markmið reglna um varnir gegn peningaþvætti eru mikilvæg. Fyrirtæki vilja taka þátt í ábyrgum viðskiptaháttum og stuðla að traustu regluverki. En það breytir ekki því að reglur þurfa að vera hóflegar, skýrar og í samræmi við raunverulega áhættu.
Alþingi getur einfaldlega dregið úr álaginu
Alþingi hefur því tækifæri til að endurmeta hvort íslenskt regluverk hafi gengið lengra en nauðsynlegt er. Með einfaldari og markvissari reglum væri hægt að draga úr kostnaði fyrirtækja, minnka ónæði fyrir almenning og bæta rekstrarskilyrði án þess að slakað sé á meginmarkmiðum eftirlitsins.
Greinargerð SVÞ um tilkynningaskyldu bifreiðaumboða, sölu og lánamiðlara – Hlaða niður HÉR!
Sjá frétt Morgunblaðsins HÉR!
Sjá frétt á DV HÉR!
Sjá viðtal á Bylgjunni, Reykjavik síðdegis HÉR!
Upptökur frá Alþingi um málið.
Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður
UPPFÆRT 22.05.2026
UMFJÖLLUN MORGUNBLAÐSINS Í DAG 22. 05. 2026
