Umsögn um þingsályktunartillögu um endurskoðun tollameðferðar á matvæli

SVÞ sendu 17. mars 2026 umsögn um þingsályktunartillögu um endurskoðun tollameðferðar á matvælum, þar sem samtökin telja ekki þörf á frekari tollahækkunum. Þau vara við neikvæðum áhrifum á verð og samkeppni og leggja áherslu á einfaldara virðisaukaskattskerfi og endurskoðun tollverndar til að draga úr verðbólguþrýstingi.

SMELLTU HÉR til að hlaða niður umsögn um þingsályktunartillögu

Umsögn SVÞ um deiliskipulag Borgarlínu á Suðurlandsbraut

SVÞ sendu 12. mars 2026 umsögn um deiliskipulag Borgarlínu á Suðurlandsbraut þar sem samtökin telja tillöguna ganga of langt gagnvart hagsmunum fyrirtækja og starfsfólks á svæðinu. Þau vara sérstaklega við verulegri fækkun bílastæða, auknum umferðarþunga og neikvæðum áhrifum á rekstur. SVÞ leggja áherslu á að skoða aðra staðsetningu Borgarlínu og stigvaxandi innleiðingu breytinga til að draga úr raski og tryggja betri samgöngur.

Umsögn SVÞ Suðurlandsbraut Borgarlína

Umsögn SVÞ um grænbók um byggðamál

SVÞ sendu 2. mars 2026 umsögn um grænbók um byggðamál þar sem samtökin leggja áherslu á að góðir innviðir, sérstaklega vegasamgöngur, séu grundvallarforsenda byggðarþróunar. Þau kalla eftir markvissri uppbyggingu vegakerfisins á grundvelli kostnaðar- og ábatagreininga, aukinni vetrarþjónustu og því að tekjur af ökutækjum og umferð renni til vegamála. Þá leggja samtökin áherslu á skýrt regluverk til að styðja orkuskipti í samgöngum og benda á nauðsyn þess að nýta heimildir til að auðvelda innleiðingu rafknúinna ökutækja.

Umsögn um grænbók um byggðamál

Umsögn SVÞ Saman gegn sóun

SVÞ sendu 2. mars 2026 umsögn um drög að stefnu og aðgerðaáætluninni Saman gegn sóun. Samtökin styðja markmið stefnunnar en leggja áherslu á virkt samráð við atvinnulífið, uppfærð gögn og aðgerðir sem samræmast þróun í nágrannalöndum. SVÞ vara jafnframt við að ganga lengra í kröfum en á EES-svæðinu þar sem það geti haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni fyrirtækja og leitt til hærra vöruverðs.

Umsögn SVÞ Saman gegn sóun