05/11/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Jón G. í þættinum Viðskipti á Hringbraut fékk Andrés Magnússon framkvæmdastjóra SVÞ í viðtal til sín á dögunum. Í viðtalinu ræða þeir þróun í netverslun og áskoranir sem íslenskar netverslanir standa frammi fyrir.
Viðtalið má sjá hér: http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/vidskipti-med-joni-g/vidskipti-med-joni-g-24oktober/ og hefst það 10 mínútur inn í þáttinn og er rétt rúmar 5 mínútur.
02/11/2018 | Fréttir, Verslun
Eins og öllum er í fersku minni komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu með dómi sínum þann 11. október s.l. að innflutningstakmarkanir á fersku kjöti feli í sér brot á EES – skuldbindingum íslenska ríkisins og séu því ólögmætar. Þar með var komin endanleg niðurstaða fyrir dómstólum á baráttu SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu sem staðið hafði í rúmlega sjö ár.
Þrátt fyrir þessa skýru niðurstöðu Hæstaréttar er ekki að merkja að neinn asi sé á stjórnvöldum og Alþingi að bregðast við og breyta íslenskri löggjöf til samræmis við niðurstöðu dómsins og þjóðréttarlegar skuldbindingar ríkisins. Samkvæmt fréttatilkynningu sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sendi frá sér sama dag og dómurinn gekk, er stefnt að því að mæla fyrir slíku frumvarpi á Alþingi í febrúar n.k.
Á meðan heldur hið ólögmæta ástand áfram að vara, með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkissjóð og skattgreiðendur. Í gær kom fyrsta sendingin af fersku kjöti til landsins, eftir að niðurstaða Hæstaréttar lá fyrir. Um var að ræða ferskt lífrænt ræktað nautakjöt frá Hollandi, sem hafði meðferðis öll tilskilin vottorð frá þar til bærum þarlendum yfirvöldum. Matvælastofnun heimilaði ekki innflutning kjötsins, þar sem það hafði ekki verði geymt í frysti í 30 daga, eins og gildandi lög gera kröfu um. Sem afleiðing þessa á innflytjandi kjötsins skýlausa bótakröfu á hendur ríkissjóði.
Hið ólögmæta ástand varir því áfram með tilheyrandi tjóni fyrir íslenska neytendur og bótaábyrgð fyrir ríkissjóð, til viðbótar við þann gífurlega kostnað sem hefur fallið á ríkið að viðhalda núverandi ástandi. SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu skora á stjórnvöld að bregðast nú hratt við og gera nauðsynlegar breytingar á löggjöfinni til að forða megi enn frekara tjóni fyrir alla aðila þessa máls.
Í þessu sambandi er nauðsynlegt að benda á að samkvæmt tölfræðigögnum frá Hagstofu Íslands hafa verið flutt út 245 tonn af fersku og ófrystu íslensku lambakjöti á s.l. tólf mánuðum án athugasemda erlendra yfirvalda. Með hliðsjón af rökum hérlendra stjórnvalda hvað varðar frystiskyldu, er því full þörf á að skoða hvaða áhrif einangrun íslenskra búfjárstofna kann að hafa fyrir erlenda neytendur.
23/10/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Í opnuviðtali í Viðskiptablaðinu fimmtudaginn 18. október sl. segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ eðli smásölu vera að breytast. Samkeppniseftirlitið taki ekki nægt tillit til alþjóðlegs eðlis smásölumarkaðar og verði að fara að horfa víðar á málin. Netverslun sé það sem koma skal. Umfjöllun má sjá á vef Viðskiptablaðsins hér og í tölublaðinu frá 18. október.
Mynd: Haraldur Guðjónsson fyrir Viðskiptablaðið
22/10/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Í opnuviðtali í Viðskiptablaðinu fimmtudaginn 18. október sl. vakti Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ athygli á því að kerfið sé of seint að bregðast við breyttum aðstæðum. Þetta hafi alvarleg áhrif á atvinnulífið. Umfjöllun má sjá á vef Viðskiptablaðsins hér og tölublaðinu frá því 18. okt.
Mynd: Haraldur Guðjónsson fyrir Viðskiptablaðið
15/10/2018 | Fræðsla, Fréttir, Verslun, Viðburðir
Vefverslanir: Sölubestun (e. Conversion rate optimization). Hvernig nærðu hámarks sölu í vefversluninni þinni?
Á námskeiðinu lærir þú hvernig þú getir getur gert einfaldar breytingar á vefsíðunni þinni til þess að auka sölu og ánægju viðskiptavina. Farið verður yfir vefgreiningar og hvernig hægt er að sjá hvort og hvar vandamál eru sem þarf að laga. Í kjölfarið verður farið yfir algengustu atriðin sem hægt er að bæta til þess að auka sölu og að lokum verður farið yfir aðferðafræði til að vera sífellt að bæta vefinn með marvissum prófunum og bestun.
Kennari: Bragi Þór Antoníusson, markaðsstjóri Elko Bragi Þór hefur sérhæft sig stafrænni markaðssetningu og hefur unnið verkefni tengd sölu- og leitarvélabestun fyrir bílaleigur, bókunarvefi, vefverslanir ofl. Hann var ráðgjafi í markaðssetningu á netinu hjá Kapli markaðsráðgjöf, markaðsstjóri TripCreator sem er sölu- og bókunarvefur fyrir flugfélög og ferðaskrifstofur og er núna markaðsstjóri ELKO og er þar ábyrgur fyrir sölu í einni stærstu vefverslun landsins. Bragi hefur kennt námskeið í markaðssetninu á netinu og haldið fyrirlestra um stafræna markaðssetningu í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.
24. október kl. 9:00-12:00 í Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík
Frítt fyrir félagsmenn en aðrir greiða 4.000kr.
TILVALIÐ AÐ FYLGJA ÞESSU EFTIR MEÐ NÁMSKEIÐI UM LEITARVÉLABESTUN FYRIR VEFVERSLANIR 13. NÓVEMBER – SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSINGAR OG SKRÁ ÞIG
UPPSELT ER Á ÞETTA NÁMSKEIÐ!
Vertu á póstlistanum og fylgstu með á Facebook, Twitter og LinkedIn svo þú missir ekki af fleiri gagnlegum viðburðum hjá SVÞ!
11/10/2018 | Fréttir, Verslun
Hæstiréttur dæmdi í dag að íslenska ríkið hefði brotið gegn þjóðréttarlegum skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum með því að halda við lýði banni við innflutningi á fersku kjöti hingað til lands. Fyrirtækið Ferskar kjötvörur ehf. fór í mál við ríkið og krafðist skaðabóta þar sem fyrirtækinu var ekki heimilað að flytja hingað til lands lífrænt ferskt nautakjöt frá Hollandi á árinu 2014. Hæstiréttur tók undir með málatilbúnaði fyrirtækisins um að sú synjun hefði farið gegn skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum sem leiddi til bótaskyldu ríkisins gagnvart fyrirtækinu. Námu bæturnar andvirði kjötsins og flutningskostnaði. Þá var ríkið dæmt til að greiða fyrirtækinu málskostnað á báðum dómstigum.
Niðurstaða dómsins er því í fullu samræmi við fyrri ábendingar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, en samtökin hafa háð áralanga baráttu fyrir afnámi þessara takmarkanna. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar samtakanna til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá árinu 2011 þar sem ESA, og síðar einnig EFTA-dómstóllinn og Héraðsdómur Reykjavíkur, komust að sömu niðurstöðu,að núgildandi innflutningstakmarkanir á fersku kjöti frá öðrum EES-ríkjum séu andstæðar EES-samningnum.
Ferskar kjötvörur ehf., aðildarfyrirtæki SVÞ, stefndi íslenska ríkinu og krafðist skaðabóta vegna tjóns sem það varð fyrir sökum synjunar á heimild til að flytja til landsins ferskar lífrænt ræktaðar nautalundir frá Hollandi. Krafðist fyrirtækið þess að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins til að fá úr því skorið hvort íslensk löggjöf væri í samræmi við EES-samninginn. Var fallist á þá beiðni og var niðurstaða dómstólsins að bannið samræmist á engan hátt skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, í nóvember 2018, var á þá sömu. Þrátt fyrir skýra niðurstöðu dómsins var málinu áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu íslenska ríkisins og kvað rétturinn upp dóm sinn fyrr í dag. Í dómi sínum fyrr í dag staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og vísaði til forsenda hans í niðurstöðu sinni.
SVÞ fagna niðurstöðu Hæstaréttar sem er lokaáfangi í baráttu samtakanna sem hófst með kvörtun SVÞ árið 2011. Að sama skapi gagnrýna SVÞ tregðu stjórnvalda að bregðast við rökstuddum og málefnalegum niðurstöðum dómstóla í málinu. Skora samtökin á stjórnvöld og Alþingi að taka á málinu í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar íslenska ríkisins. Er það krafa SVÞ að innflutningur á fersku kjöti, sem unnið er í samræmi við strangar samevrópskar kröfur og undir eftirliti annarra EES-ríkja, verði heimilaður hér á landi í samræmi við EES-löggjöfina.