03/01/2019 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Í samtali við mbl.is á milli jóla og nýárs, sagði Margrét Sanders, formaður SVÞ, að kaupmenn hafi fundið áhrif kjaradeilnanna snemma.
Sjá má umfjöllunina á vef mbl.is hér: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/27/finna_fyrir_ahrifum_kjaradeilna/
18/12/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Margrét Sanders, stjórnaformaður SVÞ, var í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, 18. desember þar sem hún ræddi um auglýsingar VR með Georg Bjarnfreðarson í aðalhlutverki.
Margrét segir að í auglýsingunni séu atvinnurekendur teiknaðir upp sem vonda fólkið. „Að atvinnurekendur ætli sér að fara illa fólk, að þeim þyki ekki vænt um fólkið sitt, að atvinnurekendur vilji græða sem mest og henda fólkinu út í hafsauga, þarna fara menn of langt og það er það sem okkar fólk er bara mjög reitt yfir.“
Margrét segir að það myndi eitthvað heyrast í VR ef Samtök verslunar og þjónustu færu að tala um að starfsmenn væru að stela úr verslunum. „Við erum að tala um glæpastarfsemi.“
Viðtalið í heild sinni má heyra á vef Rásar 2 hér.
18/12/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ var í viðtali í beinni í kvöldfréttum RÚV, mánudagskvöldið 17. desember. Í viðtalinu ræðir Andrés meðal annars aukningu jólaverslunar í nóvember og verslun ferðamanna í miðbænum.
Viðtalið má sjá á vef RÚV hér.
17/12/2018 | Fréttir, Greinar, Í fjölmiðlum, Verslun
Í dag, 17. desember, birtist eftirfarandi grein eftir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóra SVÞ og Margréti Sanders stjórnarformann, í Morgunblaðinu:
Traust og trúnaður er hin almenna regla í samskiptum vinnuveitenda og starfsfólks. Það er sem betur fer alger undantekning þegar samskipti þessara aðila eru á hinn veginn. Enda er það ein meginforsendan fyrir farsælum og árangursríkum atvinnurekstri að samskipti vinnuveitandans og starfsfólks hans séu byggð á trúnaði og trausti, þ.e. gagnkvæmri virðingu. Fullyrða má að atvinnurekendur upp til hópa, hvort sem þeir eru starfandi í verslun, þjónustu eða öðrum atvinnugreinum, leggi sig fram um að hafa þessi samskipti á sem bestan veg.
Þær sjónvarpsauglýsingar frá VR sem birtast þessa dagana eru að mati SVÞ fjarri öllum raunveruleika um það hvernig vinnuveitendur umgangast starfsfólk sitt. Það handrit að mannlegum harmleik sem sett er á svið á kómískan en um leið gildishlaðinn hátt er verulega vandmeðfarið og ekki til þess fallið að gera gaman að. Við þekkjum a.m.k. ekki þann vinnuveitanda sem vill misbjóða starfsfólki sínu á þann veg sem þar er lýst. Þó að mörgum þyki þessar auglýsingar með þeim hætti að þær nái að kitla hláturtaugar hjá fólki er undirtónn þeirra og þau skilaboð sem þær senda mjög alvarleg árás á atvinnurekendur almennt. Ef kaupmaðurinn á horninu, sem er aðalpersónan í auglýsingunum, er gott dæmi um „skúrkinn“ á íslenskum vinnumarkaði þá er sú lýsing okkur mjög framandi. Í það minnsta væri áhugavert að þeir aðilar sem standa að slíkri aðför standi keikir með staðreyndir að vopni í stað almennra alhæfinga um atvinnurekendur upp til hópa.
Hafa skal það sem sannara reynist en SVÞ hafa á undanförnum árum lagt sig fram við að eiga gott samstarf við VR á sem flestum sviðum. Þetta samstarf á ekki hvað síst að stuðla að bættri starfs- og endurmenntun félagsmanna VR, enda hafa báðir aðilar litið svo á að með því verði hinn almenni starfsmaður búinn undir þær miklu breytingar sem fyrirsjáanlegar eru í verslun og þjónustu á allra næstu árum. Breytt starfsumhverfi verslunar- og þjónustufyrirtækja kallar óhjákvæmilega á breyttar kröfur um hæfni starfsfólks.
Við lítum svo á að kröftum SVÞ og VR verði mun betur varið í að vinna í sameiningu við að takast á við þær miklu áskoranir sem eru framundan í stað þess að munnhöggvast um veruleika sem er flestum mjög fjarlægur. SVÞ mun a.m.k. leggja sig fram um að hafa samskiptin á þeim nótum og áfram hvetja sitt fólk til að hlúa vel að starfsfólki sínu og byggja upp gagnkvæmt traust vinnuveitanda og starfsfólks. Það er von SVÞ að VR sjái hag síns fólks að sama skapi betur borgið með því að tryggja slíkan framgang síns fólks í stað þess að mála upp þá hræðilegu mynd af framandi vinnusambandi sem auglýsingar undanfarið hafa teiknað upp.
29/11/2018 | Fréttir, Í fjölmiðlum, Verslun
Mikill vöxtur hefur verið í netverslun síðustu mánuði en stjórnendur netverslana segja metvöxt hafa verið yfir afsláttardaga síðustu vikna sem sífellt fleiri íslensk fyrirtæki taka þátt í. Vöxturinn hefur verið allt að 200% í netsölu á dagvöru, en enn erum við langt á eftir nágrannaríkjum.
Viðtal við Andrés Magnússon framkvæmdarstjóra Samtaka verslunar og þjónustu birtist í Viðskiptablaðinu 29. nóvember 2018. Sjá má brot úr því á vef vb.is hér.
20/11/2018 | Fréttir, Stafræn viðskipti, Verslun
Stofnfundur Faghóps um stafræna verslun var haldinn mánudaginn 12. nóvember sl. í Hyl, Húsi atvinnulífsins.
Farið var yfir hvernig faghópar innan SVÞ starfa og þann ramma sem þarf að skapa til að tryggja að farið sé eftir lögum og reglum. Einnig var farið var yfir þau mál sem rædd voru á stofn-undirbúningsfundi hópsins þann 29. október og talið er að verði helstu verkefni hópsins. Þar má helst nefna:
- Hvernig jafna megi samkeppnisstöðu íslenskra netverslana við erlenda samkeppnisaðila.
- Aðgengi íslenskra netverslana að greiðslugáttum sem auðvelda samkeppni við erlenda aðila.
- Flutninga- og sendingamál og hvort mögulegt sé að jafna samkeppnisstöðu íslenskra netverslana gagnvart erlendum samkeppnisaðilum í þeim málaflokki.
- Afnám niðurgreiðslna á póstsendingum frá Kína.
- Tolla- og skattaumhverfið með því tilliti að auðvelda íslenskum netverslunum samkeppni við erlenda samkeppnisaðila og auðvelda íslenskum netverslunum að selja og senda á erlenda markaði.
- Aðgengi að nýsköpunarsjóðum fyrir verslunar og þjónustufyrirtæki.
- Eflingu menntunar og þekkingar á sviði stafrænnar verslunar.
Var Braga Þór Antoníussyni, markaðsstjóra Elko, falið að fara með formannsembættið til bráðabirgða þar til stjórn verður formlega skipuð. Formlegur stofnfundur þar sem stjórn verður skipuð og gengið verður frá gögnum í kringum stofnun hópsins mun fara fram miðvikudaginn 5. desember kl. 13:30 í Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Rvk.
Þátttaka í hópnum er heimil félagsmönnum og aðildarfyrirtækjum SVÞ.