Möguleg lokun apóteka

Möguleg lokun apóteka

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu bendir á í viðtali við Mbl.is  í dag að viðvarandi skortur á lyfjafræðingum sé hér á landi og slegist sé um hvern þann sem útskrifast frá háskólanum.  „Ef þarna verður ekki breyt­ing á mun það hafa í för með sér al­var­lega rösk­un á starf­semi apó­tek­anna í sum­ar, ekki síst í apó­tek­um á lands­byggðinni,“ seg­ir Andrés ma. í viðtalinu. Útlit sé fyr­ir að ný­út­skrifaðir lyfja­fræðing­ar fái ekki út­gef­in starfs­leyfi fyrr en í júlí og geti þ.a.l. ekki hafið störf í apó­tek­um fyrr en þá.

Smelltu HÉR fyrir allt viðtalið frá 9. maí 2024

Ný stjórn Sjálfstæðra skóla kjörin á aðalfundi 23.apríl 2024

Ný stjórn Sjálfstæðra skóla kjörin á aðalfundi 23.apríl 2024

Aðalfundur Sjálfstæðra skóla 2024 var haldinn þriðjudaginn 23. apríl í Húsi atvinnulífsins.

Eftirtaldir voru kjörnir í stjórn Samtaka sjálfstæðra skóla 2024-2025:

Formaður – Alma Guðmundsdóttir, Hjallastefnan
Varaformaður – Kristrún Birgisdóttir, Skóli í skýjum
Meðstjórnandi og gjaldkeri – Jón Örn Valsson, Korpukot
Meðstjórnandi – María Sigurjónsdóttir, Arnarskóli
Meðstjórnandi – Sigríður Stephensen, Félagsstofnun stúdenta
Varastjórn – Bóas Hallgrímsson, Hjallastefnan
Varastjórn – Guðmundur Pétursson, Skólar
Varastjórn – Hildur Margrétardóttir, Waldorfskóli Lækjarbotnum

Úr stjórn fara Íris Jóhannesdóttir og Atli Magnússon, nýjar inn, Kristrún Birgisdóttir og María Sigurjónsdóttir.

Skoðunarmenn voru kjörnir: Sólveig Einarsdóttir, leikskólastjóri, Vinnaminni og Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri Skóla Ísaks Jónssonar.

Eftir að hefðbundnum aðalfundastörfum lauk fór Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur SVÞ, yfir stöðuna í samningaviðræðunum við Reykjavikurborg.

Ólafur Þór Kristjánsson, skólastjóri Tónasala, var með kynningu á skólanum fyrir félagsmenn. Tónsalir er nýr félagsmaður og fyrsti tónlistarskólinn sem gengur í samtökin.

Fundarstjóri var Margrét Theódórsdóttir, skólastjóri Tjarnarskóla.

___________________________________________________

 

Benedikt S. Benediktsson ráðinn nýr framkvæmdastjóri SVÞ

Benedikt S. Benediktsson ráðinn nýr framkvæmdastjóri SVÞ

Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og mun hann hefja störf 1. september nk.

Benedikt útskrifaðist með Mag. Jur. gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands 2010. Hann var nefndarritari á nefndasviði Alþingis 2010–2015, deildarsérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti 2015–2019 og hefur frá ársbyrjun 2019 gegnt starfi lögfræðings SVÞ ásamt því að vera staðgengill framkvæmdastjóra.

Benedikt hefur sem lögfræðingur SVÞ aðstoðað aðildarfyrirtæki samtakanna á breiðu sviði, ásamt því að annast almenna og sértæka hagsmunagæslu fyrir hönd samtakanna. Hann þekkir því starfsemi samtakanna afar vel.

Benedikt segir starfið leggjast afar vel í sig: „Starfsemi aðildarfyrirtækja SVÞ er á afar breiðu sviði, viðfangsefnin fjölbreytt og við stjórnendum blasa sífelldar áskoranir. Við finnum að fyrirtækin reiða sig oft samtakamáttinn sem starf SVÞ grundvallast á og það er verðugt verkefni að gæta hagsmuna rúmlega fjögur hundruð fyrirtækja. Það er eitt megin verkefni SVÞ að tryggja að til staðar séu tækifæri til hagræðingar, ekki síst með nýtingu stafrænnar tækni og gervigreindar. EES-samningurinn hefur reynst okkur afar vel en honum fylgja líka áskoranir. Innleiðing viðbótakrafna verður að taka mið af mati á getu fyrirtækja til að takast á við þær. Ég þakka traustið og stuðninginn sem stjórn SVÞ hefur sýnt mér en vil nota tækifærið og hrósa starfsfólki aðildarfyrirtækja samtakanna því án ykkar stæðum við ekki í þeim sporum sem við stöndum nú.“

Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ kveðst afar ánægður með þessa niðurstöðu: „Það var einhugur innan stjórnar samtakanna um að ráða Benedikt sem framkvæmdastjóra. Hann hefur sýnt það í störfum sínum fyrir samtökin sl. fimm ár að hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu til að bera sem án vafa mun nýtast vel í starfi hans sem framkvæmdastjóra. Hann þekkir innviði stjórnsýslunnar, er vanur samskiptum við stjórnvöld og hefur haldgóða þekkingu og reynslu af áskorunum sem blasa við atvinnulífinu á borð við stafræna umbreytingu, sí- og endurmenntun starfsfólks og auknar kröfur um sjálfbærni.“

25 ára afmælisráðstefna SVÞ í máli og myndum.

25 ára afmælisráðstefna SVÞ í máli og myndum.

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu héldu hátíðlega uppá 25 ára starfsafmælið sitt á Parliament Hótel Reykjavik v/Austurvöll miðvikudaginn 10.apríl sl., undir þemanu ‘Framtíðin bíður ekki!’

Uppselt var á ráðstefnuna og komust færri að en vildu.

Nú er hægt að nálgast allar upptökur frá 18 viðburðum, fyrirlestrum, pallborðum og Á Trúnó.

Smelltu HÉR til að nálgast sérstaka afmælisútgáfu myndaalbúm sem verður opið til 7.maí nk.
Ath! félagsfólk SVÞ hefur ótakmarkaðan aðgang að öllu efni ráðstefnunnar inn á ‘Mínar síður’

 

25 ára afmælisráðstefna SVÞ – Stemningin

25 ára afmælisráðstefna SVÞ – Stemningin

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu héldu uppá 25 ára starfsafmæli samtakanna með glæsilegri ráðstefnu á Parliament Hótel Reykjavik v/Austurvöll undir heitinu ‘Framtíðin bíður ekki’

Við komum til með að birta öll myndbönd frá ráðstefnunni á næstu dögum, en hér kemur smá stemningsmyndband sem gefur innsýn inn í ráðstefnuna.