Stjórnarkjör SVÞ 2026

Stjórnarkjör SVÞ 2026

Forysta, ábyrgð og áhrif í íslensku atvinnulífi

Á tímum þar sem rekstrarumhverfi verslunar og þjónustu er undir sífelldu álagi – vegna regluverks, alþjóðlegra sveiflna, hraðra tæknibreytinga og aukinna krafna um sjálfbærni og ábyrgð – skiptir forysta meira máli en nokkru sinni fyrr.

Kjörnefnd SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu kallar nú eftir framboðum til stjórnar samtakanna og til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins (SA). Á vettvangi stjórnar SVÞ liggja tækifæri fyrir einstaklinga með reynslu af rekstri, stefnumótun og ákvarðanatöku á æðsta stigi, til að setja sitt mark á hvernig hagsmuna verslunar og þjónustu er gætt og hvernig rekstraraðstæður þróast.

Hlutverk stjórnar SVÞ

Stjórn SVÞ mótar stefnu samtakanna, hefur yfirumsjón með forgangsröðun hagsmunagæslu og stuðlar að því að rödd verslunar- og þjónustugreina heyrist skýrt gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og á alþjóðlegum vettvangi.

Seta í stjórn SVÞ er ekki táknræn. Hún felur í sér virka þátttöku í mótun rekstrarskilyrða fyrir stóran og lykilvægan hluta íslensks atvinnulífs.

Hvað er verið að kjósa?

  • Þrír meðstjórnendur í stjórn SVÞ til tveggja ára
  • Fulltrúar í fulltrúaráð SA til eins árs

Í stjórn SVÞ sitja formaður og sex meðstjórnendur.
Eftirtaldir meðstjórnendur eiga sæti til loka starfsársins 2026/2027:

  • Dagbjört Erla Einarsdóttir, Heimar
  • Jónas Kári Eiríksson, Askja
  • Kristín Lára Helgadóttir, VeritasFormaður stjórnar SVÞ er Auður Daníelsdóttir, Drangar.

Fyrir hverja er þetta?

Þessi áskorun beinist að fólki sem:

  • er stjórnendur og stjórnarfólk í aðildarfyrirtækjum SVÞ.
  • skilur samspil stefnu, lagaumhverfis og rekstrar,
  • hefur áhuga á að taka afstöðu í flóknum og viðkvæmum málum
  • og vill leggja sitt af mörkum til langtímahagsmuna atvinnulífsins.

Seta í stjórn SVÞ hefur reynst fólki verulega gagnleg til framtíðar.

Tímasetningar og framboð

Áskorun um framboð berist: fyrir kl. 12:00, 13. febrúar 2026
Samkvæmt samþykktum rennur framboðsfrestur út 18. febrúar 2026.
Aðalfundur SVÞ verður haldinn 12. mars 2026
Tillögur um breytingar á samþykktum SVÞ þurfa að berast stjórn eigi síðar en 11. febrúar 2026.

Hvernig býður fólks sig fram?

Tilnefningar til stjórnar SVÞ og/eða fulltrúaráðs SA skulu sendar:

á netfangið kosning@svth.is, eða í pósti merktum „Kjörnefnd SVÞ“ á:
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu
Borgartún 35, 105 Reykjavík

Tilkynning um framboð þarf ekki að vera flókin, í henni þarf að aðeins að koma fram nafn frambjóðanda, nafn vinnuveitanda (aðildarfyrirtækis SVÞ) og stjórnarstaða innan fyrirtækis eða að viðkomandi sitji í stjórn þess.

Varanleg áhrif á samkeppnishæfni verslunar og þjónustu á Íslandi

SVÞ hafa hlutverki að gegna þar sem ákvarðanir stjórnvalda á næstum árum geta haft varanleg áhrif á samkeppnishæfni, arðsemi og samfélagslegt hlutverk verslunar og þjónustu á Íslandi.

Ef þú hefur skýra sýn á hvað þarf að gera – þá skiptir þitt framlag máli.

Kjörnefnd SVÞ

 

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026 – Atlas Primer hlýtur Menntasprotann

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026 – Atlas Primer hlýtur Menntasprotann

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica. Þar var BM Vallá útnefnt Menntafyrirtæki ársins 2026.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að hjá BM Vallá sé fræðsla „ekki jaðarverkefni heldur órjúfanlegur hluti“ af starfseminni og mannauðsmálum. Dómnefndin vísar jafnframt til markvissrar vinnu frá árinu 2020, inngildandi nálgunar og þess að fyrirtækið hafi tryggt raunverulegt aðgengi að fræðslu fyrir fjölþjóðlegan starfshóp með lausnum sem taki mið af aðstæðum á íslenskum vinnumarkaði.

Menntasprotinn 2026: Atlas Primer

Dómnefnd valdi Atlas Primer sem Menntasprota atvinnulífsins 2026. Í umsögn dómnefndar er fyrirtækinu lýst sem menntatæknifyrirtæki sem sameini tæknilega forystu, samfélagslega ábyrgð og alþjóðlegan metnað í stafrænni fræðslu, meðal annars með nýstárlegri samtalsgervigreind sem geti gert nám aðgengilegra, mannvænna og skilvirkara fyrir ólíka hópa.

Aðildarfélög SVÞ meðal tilnefndra

Fjöldi tilnefninga barst til Menntaverðlaunanna. Auk BM Vallár voru AÞ Þrif og Krónan tilnefnd til Menntafyrirtækis ársins 2026

Evrópsk verslun og heildsala mótar framtíðina – Retail & Wholesale Week 2026

Evrópsk verslun og heildsala mótar framtíðina – Retail & Wholesale Week 2026

Dagana 7.–9. apríl 2026 stendur EuroCommerce fyrir Retail & Wholesale Week 2026, flaggskip viðburði samtakanna í European Parliament í Brussel. Þar koma saman leiðtogar úr verslun og heildsölu, stefnumótendur og helstu hagaðilar til að ræða hlutverk greinarinnar í samkeppnishæfri, nýskapandi og sjálfbærri Evrópu.

Á dagskrá eru markvissar pallborðsumræður um framtíð verslunar og heildsölu, stutt TEDx-lík erindi um áhugaverð verkefni og rannsóknir, auk funda og tengslamyndunar við evrópska þingmenn og áhrifafólk. Meðal gestgjafa eru þingmennirnir Lidia Pereira, Jannette Baljeu og Maria Guzenina.

Fyrir íslenska stjórnendur í verslun og þjónustu er þetta einstakt tækifæri til að fylgjast náið með þeirri stefnumótun sem mótar rekstrarumhverfið í Evrópu – og tryggja að rödd greinarinnar heyrist þegar ákvarðanir eru teknar.

Nánari upplýsingar og full dagskrá verða kynnt síðar- sjá hér!

Fréttamolar SVÞ | Janúar 2026

Fréttamolar SVÞ | Janúar 2026

Janúar 2026 einkenndist af markvissri hagsmunagæslu með fókus á verðbólgu, skattabreytingar og regluverksákvarðanir sem hafa bein áhrif á rekstrarforsendur verslunar og þjónustu. Jafnframt var sjónum beint að skipulagsmálum og opinberri umræðu sem getur raskað fyrirsjáanleika í rekstri, samhliða undirbúningi lykilviðburða SVÞ á vormánuðum.

FlippingBook shortcode is not correct
Skipulagsbreytingar við Suðurlandsbraut geta haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja

Skipulagsbreytingar við Suðurlandsbraut geta haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja

Áform Reykjavíkurborgar um breytingar á skipulagi við Suðurlandsbraut hafa vakið áhyggjur meðal fyrirtækja og fasteignaeigenda á svæðinu. Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag er fjallað um að fyrirhugaðar breytingar geti haft áhrif á aðgengi, nýtingu lóða og rekstrarforsendur fyrirtækja í verslun og þjónustu.  

Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, bendir á að umræðan um svæðið gefi ekki rétta mynd af stöðunni og bendir á að meðal aðildarfyrirtækja SVÞ séu fyrirtæki sem meta stöðuna sem svo að þau verði fyrir 60% skerðingu á bílastæðum.  

„Það er ljóst að sú staða verður afar erfið að fást við, ekki síst í þeim tilvikum þar sem í nágrenninu hefur verið reist íbúðabyggð með fáum bílastæðum og íbúar hafa í ýmsu tilliti brugðið á það ráð að leggja bílum sínum á bílastæði fyrir fyrirtæki sem eru staðsett við Suðurlandsbraut“ bendir Benedikt m.a. á í viðtalinu.  

SMELLTU HÉR til að lesa allt viðtalið. [Mynd Mbl.]

Skipulagsbreytingar geta skert aðgengi fyrirtækja